Á morgun hefst listahátíðin Pólar á Stöðvarfirði og stendur yfir fram á sunnudag. Pólarhátíðin var haldin í fyrsta sinn árið 2013 í samstarfi við þorpshátíðina Maður er manns gaman og er markmið hátíðarinnar að kynna Stöðvarfjörð fyrir fólki og fólk fyrir Stöðvarfirði.
Vika er síðan vinirnir Karl Friðriksson og Grétar Gústavsson lögðu upp í hringferð um landið á tveimur Massey Ferguson dráttarvélum. Þeir komu við á Egilsstöðum í dag og buðu leikskólabörnum að skoða vélarnar auk þess sem þeir ræddu við þau um mikilvægi vináttunnar.
Þorrablót verður haldið á Borgarfirði eystri næstkomandi föstudagskvöld. Félagarnir hjá Já Sæll í Fjarðarborg standa að blótinu, en þeir hafa haldið ýmsa óvenjulega viðburði og skemmst er að minnast seinasta sumars, er jólin voru haldin hátíðleg um miðjan júlímánuð.
Woodpigeon og Teigur Magnússon verða aðalnöfnin á Bulsuveislu á Karlsstöðum í Berufirði á sunnudagskvöld. Í Skaftfelli á Seyðisfirði er síðasta sýningarhelgi Landslags hjartans sem er framlag listamiðstöðvarinnar til 120 ára afmælis Seyðisfjarðarkaupstaðar og í Sláturhúsinu á Egilsstöðum opnar farandsýningin „Veggir úr sögu kvenna."
Listamaðurinn Odee, eða Oddur Eysteinn Friðriksson, opnar nýja sýningu sína í Dahlshúsi á Eskifirði í dag. Á sýningunni, sem stendur yfir til 19. júlí, gerir Odee upp viðburðaríkt fyrsta ár sitt sem listamaður. Hann verður með opið hús frá 17-22 og býður austfirðingum öllum að líta við, kynnast austfirskri samtímalist og þiggja léttar veitingar.
Tónleikaröðin Allt-öðruvísi hádegistónleikar hefur hafið göngu sína annað árið í röð en tónleikarnir eru í hádeginu alla miðvikudaga frá 1. júlí til 12. ágúst í Tónlistarmiðstöð Austurlands á Eskifirði.
Félagar úr félagi eldri borgara á Fljótsdalshéraði hafa undanfarna snyrt svæðið í kringum útileikhúsið í Selskógi. Þeir stefna á að taka að sér fleiri verkefni í sjálfboðavinnu fyrir samfélagið.
Björgvin Gítarkvartett frá Bergen í Noregi, sem skipaður er Fellbæingnum Öystein Magnús Gjerde og þremur ungum norskum gítarleikurum, hefur verið á ferð og flugi um landið síðustu daga. Nú eru þeir komnir austur á land og spila á sumartónleikum Egilsstaðakirkju í kvöld kl. 20, í Djúpavogskirkju á laugardag kl. 17 og á Pólar Festival á Stöðvarfirði þriðjudaginn 7. júlí kl. 20.