Á fundi norrænu forsætisráðherranna á Egilstöðum 14. júní gerði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra grein fyrir því að Alþingi Íslendinga hefði nú til umfjöllunar tillögu til þingsályktunar um umsókn um aðild að Evrópusambandinu. Tillagan gerði ráð fyrir því að loknum viðræðum við sambandið verði haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um væntanlegan aðildarsamning. Forsætisráðherra kvaðst vonast til þess að tillagan yrði samþykkt og óskaði eftir stuðningi og góðum ráðum norrænu ESB-ríkjanna í því ferli sem þá tæki við. Forsætisráðherrar norrænu Evrópusambandsþjóðanna fögnuðu þessum áformum og buðu Íslendinga velkomna í Evrópusamstarfið.
Á blaðamannafundi forsætisráðherra Norðurlandaþjóðanna, sem haldinn var á Egilsstöðum í morgun, sagði Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, að vissulegahefði það áhrif á umsóknarferli Íslendinga í Evrópusambandið hversu miklar undanþágur og sérákvæði væri farið fram á. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra Íslendinga sagðist hafa fulla trú á að Alþingi samþykki stjórnartillögu um aðildarviðræður við ESB.
Fljótsdalshreppur hefur ákveðið að ganga til samninga við RARIK um sameiginlegar framkvæmdir við lagningu ljósleiðara um sveitina í sumar. Fljótsdalshreppur ætlar að lána RARIK 20 milljónir króna til fimm ára vegna framkvæmdanna.
Í dag fannst sprengja í flaki skipsins El Grillo á botni Seyðisfjarðar. Hún fannst þegar kafarar fóru niður að flakinu til að sækja þangað hluta af fallbyssu sem til stendur að gera upp. Menn úr sprengjudeild Landhelgisgæslu Íslands koma væntanlega til Seyðisfjarðar á morgun til að gera sprengjuna óvirka. Nokkur fjöldi sprengja hefur fundist í og við El Grillo gegnum tíðina.
Kona hafði samband og sagði frá heldur leiðinlegu atviki tengdu matjurtagarði sem Fljótsdalshérað býður almenningi til afnota gegn vægu gjaldi. Hún hafði leigt slíkan garð, enda ánægð með þetta framtak sveitarfélagsins og fór ásamt sonum sínum með ræktarlegar matjurtaplöntur og setti í garðinn á annan í hvítasunnu. Leið svo og beið og plönturnar tóku vel við sér. Á miðvikudag í síðustu viku fóru þau til að líta eftir og blasti þá við ófögur sjón. Búið var að rífa upp allt kálið og henda því í eina hrúgu og voru plönturnar að sögn konunnar flestar ónýtar.
,,Þarna er um hreina skemmdarfýsn að ræða. Mér finnst þetta góð viðleitni hjá bænum að bjóða upp á garðana, en jafnleiðinlegt að þetta skuli ekki vera látið í friði,“ sagði konan og hvetur skemmdarvarginn til að láta af þessari ljótu iðju. Hún sagðist hafa séð viðlíka aðfarir í að minnsta kosti einum öðrum matjurtagarði á svæðinu.
Fundur norrænu forsætisráðherranna hófst á Hótel Héraði á Egilsstöðum klukkan fjögur og stendur fram eftir kvöldi. Á morgun skoða ráðherrarnir Fljótsdalshérað.
Bæjarstjórn Hornafjarðar lýsir yfir miklum áhyggjum vegna þeirra óvissu kominn er upp í rekstri fyrirtækja í sjávarútvegi á Hornfirði. Nú þegar hefur ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að fara svokallaða fyrningarleið á úthlutuðum kvóta valdið fyrirtækjum skaða og sett rekstur þeirra í uppnám. Auk sjávarútvegsfyrirtækja hefur þetta mikil áhrif á nýsköpun og þau fyrirtæki sem hafa atvinnu af þjónustu við sjávarútveginn.
Forvarnaskólinn hóf þá nýbreytni í ár að bjóða upp á nám utan höfuðborgarsvæðisins. Fyrsti staðurinn til þess að fá skólann til sín var Egilsstaðir, en nemendur komu víðar af á Austurlandi. Skólinn hófst í lok janúar en útskrift fór fram 24. maí sl. í fundarsal bæjarstjórnar á Fljótsdalshéraði.
Á fimmtudaginn var tóku starfsmenn bæjarskrifstofunnar á Reyðarfirði sig til og gróðursettu runna við bílastæði kirkjunnar.Starfsmenn stóðu sig ágætlega við gróðursetningu en voru í essinu sínu þegar þeir komust í mikla fíflabreiðu í stærðarbeði.Þar var farið á kostum og reitt heilt kerruhlass af fíflum. Eftir góða vinnuskorpu var boðið í grill við safnaðarheimilið.