Höttur heimsækir í kvöld fyrstu deildarlið Breiðablik í átta liða úrslitum bikarkeppni karla í körfuknattleik. Þrátt fyrir erfitt tímabil í úrvalsdeildinni hefur Höttur sjaldan átt betri möguleika á að komast í undanúrslit bikarkeppninnar.
Karlalið Þróttar hafði betur gegn Íslandsmeisturum HK í fyrri leik liðanna af tveimur um helgina. Þjálfari liðsins segist ekki hafa átt von á sigri en liðið hafi spilað frábærlega í báðum leikjunum.
Þróttur Neskaupstað er í fyrsta sæti efstu deildar kvenna eftir tvo toppslagi við Stjörnuna um síðustu helgi. Lykilmaður í liði Þróttar segir unga leikmenn liðsins enn eiga margt eftir ólært.
Leikur Hattar og KR í úrvalsdeild karla í körfuknattleik seinkar til klukkan 20:00 í kvöld vegna seinkunnar á flugi í dag en hann átti að hefjast klukkan 19:15. Íslandsmeistarar KR áttu upphaflega að lenda á Egilsstöðum klukkan 15:30 en vélinni hefur seinkað um þrjá tíma.
María Rún Karlsdóttir, blakkona, var um helgina útnefnd íþróttamaður Þróttar Neskaupstað fyrir árið 2017. Íþróttamenn úr hverri deild félagsins voru verðlaunaðir fyrir árið við sama tilefni.
Höttur er enn án sigurs eftir sjö leiki í úrvalsdeild karla í körfuknattleik eftir 66-92 tap gegn Keflavík á Egilsstöðum í gærkvöldi. Leikur Hattar gaf aldrei vonir um að liðið ætti séns gegn Suðurnesjaliðinu.
„Það er alltaf eitthvað sem maður hefur haldið í síðan maður var lítill, að vinna Freyjumenið og verða glímudrotting Íslands,“ sagði Bylgja Ólafsdóttir í viðtali í þættinum Að austan á N4, sem leit við á glímuæfingu á Reyðarfirði til að kynna sér sextíu ára sögu íþróttarinnar í bænum.
Kolfinnubækur Hrannar Reynisdóttur frá Eskifirði hafa notið töluverðra vinsælda en önnur bókin í bókaflokknum er nýkomin út. Hrönn er í hópi rithöfunda sem ferðast um Austurland um helgina og lesa upp úr bókum sínum.
Kvennalið Þróttar tyllti sér aftur á toppinn í Mizuno-deild kvenna í blaki með því að vinna báða leiki sína gegn Íslandsmeisturunum HK í Neskaupstað um síðustu helgi. Ekki gekk jafn vel hjá karlaliðinu sem tók á móti Stjörnunni.