Völva Agl.is: Hvar hafði hún rétt fyrir sér
Fyrsti hluti spár völvu Agl.is birtist á morgun. Því er rétt að rifja upp það sem rættist í spádómi völvunnar í fyrra.
Fyrsti hluti spár völvu Agl.is birtist á morgun. Því er rétt að rifja upp það sem rættist í spádómi völvunnar í fyrra.
Ekki var samstaða innan framkvæmdastjórnar Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA) um að leggja til að loka sjúkrasviði Fjórðungssjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað tvo mánuði í sumar í sparnaðarskyni.
Nýtt kerfi almenningssamgangna hefur verið tekið í notkun á Austurlandi. Þetta nýja kerfi tengir átta þéttbýliskjarna saman í fjórðungunum.
Heimamenn á austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs vara við að hugmyndir um sameiningu stjórnunar og friðlýstra svæða í eina stofnun gangi gegn grunnhugmyndum Vatnajökulsþjóðgarðs um virka þátttöku heimamanna í stjórnun hans. Þeir vara við að allt valdið verði flutt suður til Reykjavíkur.
Guðfræðingurinn Davíð Þór Jónsson verður fræðslufulltrúi Austfjarðaprófastsdæmi frá 1. mars til 31. ágúst í leyfi séra Þorgeirs Arasonar. Davíð er reyndar þekktastur sem útvarps- og sjónvarpsmaður, leikari, þýðandi, skáld, ritstjóri og pistlahöfundur og spurningahöfundur.
Sprengjusveit Landhelgisgæslunnar eyddi á föstudag tundurdufli frá síðari heimsstyrjöld sem kom í ljós við Selfljótsós á Héraðssandi.
Óttar Steinn Magnússon, fyrirliði karlaliðs Hattar í knattspyrnu, var valinn íþróttamaður Hattar árið 2011 á þrettándagleði félagsins á föstudagskvöld. Félagið verðlaunaði fleiri íþróttamenn við sama tækifæri.
Innan umhverfisráðuneytisins er unnið að hugmyndum að sameiningu stjórnunar þjóðgarða og friðlýstra svæða á Íslandi í eina stofnun. Markmiðið er að efla og styrkja starfsemi þeirra. Varað hefur við að slíkar breytingar á stjórnun Vatnajökulsþjóðgarðs skapi neikvæðni heimamanna í garð stofnunarinnar.
Ljósbjörg Petra María Sveinsdóttir, steinasafnari á Stöðvarfirði, lést á hjúkrunarheimilinu Uppsölum á Fáskrúðsfirði í gærmorgun.
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar skorar á ríkisvaldið að veita nægilegu fjármagni til Fjórðungssjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað til að ekki komi til lokunar sjúkrasviðs í sumar eins og yfirstjórn Heilbrigðisstofnunar Austurlands hefur lagt til í sparnaðarskyni.
Umhverfisráðuneytið hefur ekki enn haft samráð við sveitarstjórnir á svæði Vatnajökulsþjóðgarð við vinnu að sameiningu stjórnunar þjóðgarða og friðlýstra svæða. Lög um Vatnajökulsþjóðgarð gera ráð fyrir öðru. Heimamönnum gremst þetta. Ráðuneytið segir enga ákvörðun enn hafa verið tekna um sameiningu þjóðgarðanna.
Kröfur í þrotabú Trésmiðju Fljótsdalshéraðs og tveggja skyldra félaga námu tæpum einum og hálfum milljarði króna. Um fimmtungur þeirra fékkst greiddur. Skiptum á búunum lauk í desember.
Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.