Færri söluaðilar komust að en vildu á Jólaköttinn 2024
Illu heilli komust ekki allir þeir kynningar- og söluaðilar að með pláss á stærsta jólamarkaði Austurlands, Jólakettinum, sem fram fer á morgun laugardag. Að þessu sinni er markaðurinn í tveimur byggingum.
Kvöddu Sumarlínu eftir 18 ár
Óðinn Magnason og Björg Hjelm létu af rekstri Café Sumarlínu á Fáskrúðsfirði í lok sumars eftir að hafa staðið vaktina í um 20 ár. Næsta kynslóð hefur nú tekið við.SÚN gefur bókina um snjóflóðin í Neskaupstað
Samvinnufélag útgerðarmanna í Neskaupstað (SÚN) gefur um þessar mundir bók af Útkallsbók Óttars Sveinssonar sem fjallar um snjóflóðin í Neskaupstað í desember árið 1974. Minningarstundir verða haldnar á föstudag bæði eystra og í Reykjavík til að minnast atburðanna fyrir 50 árum.Jólasýning Sláturhússins um helgina
Þétt dagskrá verður í boði alla helgina í menningarmiðstöðinni Sláturhúsinu á Egilsstöðum en á morgun opnar þar jólasýning miðstöðvarinnar.
Fagnar stórafmæli með gítartónleikum
Gítarleikarinn og Seyðfirðingurinn Guðlaugur Kristinn Óttarsson fagnar í dag 70 ára afmæli sínu með að spila úrval gítarverka og fjalla um fyrirbrigði, sem hann kallar hulduljós og hefur rannsakað á síðustu árum, á Seyðisfirði í dag.Sagan um Fásinnu
Í ár eru 40 ár liðin frá því að Bítillinn fyrrverandi Ringo Starr var heiðursgestur Atlavíkurhátíðar um verslunarmannahelgi. Aðalhlutverk Ringos var að afhenda verðlaun í árlegri hljómsveitarkeppni hátíðarinnar. Hljómsveitin sem vann var Fásinna.Anna Heiða í Blómahorninu þakkar fyrir sig
Anna Heiða Gunnarsdóttir hefur í um 20 ár haft umsjón með sumarblómum og öðrum gróðri fyrir Austfirðinga. Frá 2010 hefur hún verið manneskjan á bakvið Blómahornið á Reyðarfirði. Nýir rekstraraðilar hafa nú tekið við.Merki Vopnafjarðar valið norrænt sveitarfélagsmerki ársins
Norræn áhugamannasamtök um skjaldarmerkjafræði sem árlega kjósa norrænt sveitarfélagsmerki ársins völdu fyrir skemmstu merki Vopnafjarðarhrepps sem merki þessa ársins.