Ljóð Hákonar kveðin og lesin af húsgöflum
Hátíðarhöldin á 17. júní á Fljótsdalshérað voru með hefðbundnum hætti. Hluti hátíðarhaldanna var að ljóð Hákonar Aðalsteinssonar voru kveðin og lesin af húsgöflum og veggjum meðan gengið var um götur Egilsstaða.Vegreiði 2010 í Bragganum á Egilsstöðum
Laugardaginn 12. júní verða tónleikarnir Vegareiði haldnir í fimmta skipti í Bragganum við Sláturhúsið á Egilsstöðum.Bók með ljóðum Þorsteins í Svínafelli komin út
Ljóðabókin Undir breðans fjöllum, úrval verka Þorsteins Jóhannssonar í Svínafelli, var formlega kynnt í gær. Það er fjölskylda Þorsteins sem valdi verkin í bókina.
Nemendur mættu á frídegi til að klára verkefni
Nemendur í áttunda bekk Egilsstaðaskóla, sem reistu líkan af torfbæ við Minjasafn Austurlands, unnu við verkið af svo miklu kappi að þau mættu á frídegi til að geta lokið verkinu. Forseti Íslands afhjúpaði líkanið á sunnudaginn.
Sjómannadagshátíðarhöld á Djúpavogi
Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur á Djúpavogi um síðustu helgi að vanda. Mál manna var að þetta væru fjölmennustu sjómanndagshátíðarhöld þar í mörg herrans ár.Messað í Hofteigskirkju um helgina
Messa verður í Hofteigskirkju á Jökuldal sunnudaginn 20. júní og hefst messan kl. 14. Fermd verður Ásta Lilja Snædal frá Skjöldólfsstöðum á Jökuldal. Sóknarpresturinn, Lára G. Oddsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari, organisti er Tryggvi Hermannsson. Allir eru velkomnir til messunnar.
Í lautarferð með Prins póló
Systkinin Þorsteinn Ívan og Mekkín Ann Bjarkabörn brugðu sér í lautarferð á dögunum, snæddu Prins Póló og drukku vatn með.