Lögbann hefur verið sett á nýtingu 500 milljóna króna hlutafjár sem fékkst í hlutafjáraukningu Eskju hf. á Eskifirði í byrjun október. Landsbankinn fór fram á lögbannið en ágreiningur er á milli bankans og hluthafanna um verðmat á fyrirtækinu sem lá til grundvallar hlutafjáraukningunni. Landsbankinn telur verðmætið hafa verið of lágt, sem leiddi til þess að stærri hluti fyrirtækisins hafi fengist fyrir upphæðina en ella hefði verið. Málið verður rekið fyrir Héraðsdómi Austurlands og þar skorið úr um hæfilegt verðmat á Eskju hf.
Um og yfir 300 manns mættu á fund um málefni Heilsugæslu Fjarðabyggðar, sem haldinn var á Eskifirði í gærkvöld. Til fundarins var boðað af stuðningsmannahópi Hannesar Sigmarssonar yfirlæknis Heilsugæslu Fjarðabyggðar, sem leystur var tímabundið frá störfum vegna rannsóknar á oftöku launa vegnalæknisverka í febrúar sl. Fundurinn samþykkti einróma þrjár ályktanir sem varða heilbrigðismál í sveitarfélaginu, m.a. um að Fjarðabyggð sjái sjálf um rekstur heilbrigðisþjónustu.
Hornfirðingar sýndu góð tilþrif í spurningakeppni Sjónvarps, Útsvari, í kvöld og fóru með sigur af hólmi í viðureign við Skagfirðinga. Leikar fóru 84-78 og mæta því Hornfirðingar aftur í Útsvar öðru hvoru megin við áramótin næstu. Liðið er skipað feðgunum Þorsteini Sigfússyni og Þorvaldi Þorsteinssyni í Skálafelli og Emblu Grétarsdóttur.
Stjórn Bláu kirkjunnar á Seyðisfirði fékk nýverið Rannveigu Þórhallsdóttur til þess að fara í gegnum skjöl og önnur gögn úr dánarbúi Muff Worden tónlistarmanns sem lést fyrir fáum árum. Tilgangurinn var að gera ævi Muff skil, en hún var stofnandi Bláu kirkjunnar, sem staðið hefur fyrir sumarlöngum tónlistarflutningi um árabil. Á forsíðu vefsíðunnar www.blaakirkjan.is má smella á krækjuna ,,Um Bláu kirkjuna" og síðan á krækjuna ,,Muff Worden" til að lesa texta Rannveigar og skoða myndir.
Heinabergsjökull í Vatnajökli hefur hopað um 80 metra að norðan, samkvæmt mælingum jarðfræðinema úr Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu í síðustu viku. Sunnanvert hefur jökullinn eitthvað gengið fram.
Messa tileinkuð hjálparstarfi verður í Egilsstaðakirkju á morgun, sunnudag, kl. 14. Jónas Þórisson, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar, predikar. Um er að ræða sameiginlega guðsþjónustu safnaða á Fljótsdalshéraði. Prestar á Héraði þjóna fyrir altari og fermingarbörn í sóknunum eru hvött til þátttöku ásamt forráðamönnum.
Á fundi bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs í gær, 4. nóvember, var samþykkt að óska eftir viðræðum við samgönguyfirvöld um að Fljótsdalshérað taki að sér rekstur Vegagerðar ríkisins á Austurlandi og Egilsstaðaflugvallar.
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að hækka verð á slægðum og óslægðum þorski, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 15%. Þá var ákveðið að hækka verð á slægðri og óslægðri ýsu um 15%. Verð á karfa var hækkað um 10%. Verð þetta gildir frá og með deginum í dag, að því er segir á vef LÍÚ.
Í spurningaþætti Sjónvarpsins, Útsvari, mætast í kvöld lið Hornafjarðar og Skagafjarðar. Það eru Hornfirðingarnir Embla Grétarsdóttir og feðgarnir Þorsteinn Sigfússon og Þorvaldur Þorsteinsson sem takast á við Skagfirðinga. Austurglugginn óskar liðinu góðs gengis!