Á laugardag dreifðist súrál um álverssvæðið á Reyðarfirði og eitthvað víðar þegar bilun varð í búnaði við löndun súráls í Mjóeyrarhöfn. Stór bingur af súráli féll ofan á súrálstankinn og fauk úr honum um nærliggjandi svæði. Um 37 þúsund tonn af súráli voru í skipinu í Mjóeyrarhöfn og lauk löndun úr því um helgina. Súrál er hættulaust, hvítt, púðurkennt jarðefni og er efnasamband áls og súrefnis, einnig nefnt áloxíð. Það er aðalhráefnið í lokaframleiðlu á áli í álverum.
Sextán sjálfboðaliðar á vegum Veraldarvina, bjóða íbúum Fjarðabyggðar og öðrum gestum á ljósmyndasýningu sem opnar í vélaverkstæði dráttarbrautarinnar að Eyrargötu í Neskaupstað kl. sex í dag.
Björgunarsveitinar Brimrún frá Eskifirði og Ársól frá Reyðarfirði voru
kallaðar út klukkan 00:40 í nótt vegna manns sem hafði ekki skilað sér
eftir göngu á Hólmatind. Ættingjar fóru að óttast um manninn þegar líða
fór að miðnætti og báðu um aðstoð.
Dansverkið On your own verður sýnt í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu á menningarnótt 22. ágúst. Höfundur tónlistar í verkinu er hinn góðkunni, seyðfirski tónlistarmaður Einar Bragi Bragason. Verkið var frumflutt á opnunarhátíð Ormsteitis í Fljótsdalsstöð í fyrra. Irma Gunnarsdóttir er danshöfundur. Við flutning verksins, sem raunar verður flutt tvisvar, spila Einar Bragi og Jón Borgar Loftsson slagverksleikari. Flutningur verksins fer fram kl. 17:30 og 20:30.
Kona sem var á ferð með hreindýraskyttum á Fljótsdalsheiði í gær fékk í sig brot úr byssukúlu sem endurkastaðist af grjóti. RÚV greinir frá þessu. Segir að slysið hafi orðið um hádegisbil í gær nálægt Bessastaðavötnum á Fljótsdalsheiði.
Mikil stemmning er nú í miðbæ Egilsstaða í blíðuveðri. Fjöldi fólks skemmtir sér á bæjarhátíðinni Ormsteiti, sem staðið hefur yfir í rúma viku og nær hápunkti í dag á Egilsstöðum og í Fljótsdal á morgun. Í morgun var byrjað að heilgrilla hreindýr yfir opnum eldi í miðbænum og von á í það minnsta 250 manns í hreindýrakjötsveislu þegar líður að kvöldi við menningarhúsið Sláturhúsið. Þar er nú markaður og í kvöld hátíðardagskrá og músík.
Þórunn Hjartardóttir opnar sýningu í verkefnarými Skaftfells á Seyðisfirði í dag, fimmtudag, en hún er gestalistamaður þar í ágúst. Verkefnarýmið er gamla bókabúðin við Austurveg, en þar hefur Þórunn unnið stað- og tímabundna innsetningu sem heitir Leiðréttingar.