Foreldrar brýni fyrir börnum sínum að fara varlega
Lögreglan á Egilsstöðum var kölluð til laust fyrir síðustu helgi eftir að maður á bifreið stöðvaði hjá nokkrum stúlkum 10 til 12 ára gömlum skammt frá íþróttahúsi bæjarins og bað þær að tala við sig. Grunur lék á að maðurinn hefði hugsanlega ætlað að lokka eina eða fleiri stúlknanna upp í bílinn. Ein stúlknanna hljóp inn í íþróttahúsið og sagði frá atvikinu og í kjölfarið var hringt í lögreglu. Kvittur er uppi í bænum um að þetta sé ekki eina tilvikið af þessum toga í sumar.