Hin merka saga Hótels Hildibrand í Neskaupstað

„Þegar húsið er opnað fyrst var hér á neðstu hæðinni matvöruverslun og hluti af járnvöruverslun og svo var á annarri hæð herrafataverslun og einnig á þeirri hæð voru skrifstofur Kaupfélagsins og á þriðju hæð var svo svokölluð dömudeild,“ útskýrir Guðröður Hákonarson, eigandi Hildibrand hótels í Neskaupstað.

Lesa meira

Heldur hátíð til minningar um systur sína

„Þarna verðum við með bakkelsi og kaffi frá klukkan 15.30 frameftir degi og vonandi endar þetta á góðu partíi í fjósinu gamla í Seldal,“ segir Ína Dagbjörg Gísladóttir, sem skipuleggur Hölluhátíð í dalnum til heiðurs systur sinni Hallgerði Gísladóttur, sagn- og þjóðfræðingi, sem hefði orðið sjötug á þessum tímapunkti hefði henni auðnast líf til.

Lesa meira

„Var farin að sakna sauðaosts“

„Þetta byrjaði allt á því að ég var farinn að sakna þess að fá sauðaost,“ segir Ann-Marie Schlutz, rekstraraðili Matarvagnsins við Hengifoss í Fljótsdal, en hún rekur ættir austur til Þýskalands.

Lesa meira

„Þegar græjur koma saman þá kemur fólk á Austurlandi saman“

„Fólk hér á Austurlandi er tækjafólk held ég að megi segja og þegar græjur koma saman þá kemur fólk á Austurlandi saman,“ segir Þura Garðarsdóttir, turnmaður á Egilsstaðaflugvelli og aðalsprautan að baki flughátíðinni Flug og fákar sem fram fór á Egilsstöðum síðla júlímánaðar.

Lesa meira

Fékk fimm manns í félagið á fyrsta kynningarfundi af fjórum

„Það mættu 19 manns á þessa fyrstu kynningu í morgun og það er gleðilegt að segja frá því að af þeim skráðu sig fimm umsvifalaust í félagið okkar,“ segir Örn Ragnarsson, formaður Félags trérennismiða á Íslandi, en hann hélt kynningu á Egilsstöðum í morgun.

Lesa meira

Katrín Halldóra kemur heim um helgina

Söngkonan Katrín Halldóra Sigurðardóttir heldur þrenna tónleika á heimaslóðum um helgina. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröðinni Tónaflugi. Ýmis námskeið eru í boði þessa fyrstu helgi september.

Lesa meira

Bygging rafstöðvar á Eiðum var stórvirki

Þegar framtíð Eiðaskóla þótti vera komin í tvísýnu snemma á fjórða áratug síðustu aldar fór fólk af stað og tryggði að byggð yrði rafstöð fyrir skólann. Mikil vinna var að baki framkvæmdunum.

Lesa meira

Ný þáttaröð af Að austan í loftið

Ný þáttaröð af þáttunum Að austan, sem N4 sýnir um austfirsk málefni, hefst í kvöld. Rætt hefur verið við á annað þúsund Austfirðinga í þáttunum.

Lesa meira

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar