Brjánsi endurfæddur

img_3463.jpg

Brjánsi virtist endurfæddur á frumsýningu Djúpsins á leikritinu Sódóma Reykjavík! í kvöld í Egilsbúð.

 

Lesa meira

Vigdís Diljá vann Barkann: Myndir

barkinn_2012_0062_web.jpg
Vigdís Diljá Óskarsdóttir úr Fellabæ bar sigur úr býtum í söngkeppni Menntaskólans á Egilsstöðum, Barkanum, sem haldinn var fyrir skemmstu. Hún flytur því framlag skólans í söngkeppni framhaldsskólanna.
 

Lesa meira

Minjavernd og Virðing taka höndum saman um endurgerð Franska spítalans

franskispitalihafnarnes_minjavernd_web.jpgVirðing hf. hefur í samstarfi við fjárfesta lokið langtímafjármögnun vegna umfangsmesta verkefnis sem Minjavernd hefur ráðist í utan höfuðborgarsvæðisins. Verkefnið felst í endurbyggingu sögufrægra húsa á Fáskrúðsfirði, sem staðsett verða í þyrpingu við sjóinn. Verður Franski spítalinn frá 1903 þar í öndvegi, en húsið var að hruni komið enda verið í niðurníðslu í nær hálfa öld.

 

Lesa meira

Ungt fólk og lýðræði

ungt_folk_lydraedi_2012.jpg

Ráðstefnan „Ungt fólk og lýðræði“ verður haldin dagana 29. – 31. mars á Hótel Hvolsvelli. Þema ráðstefnunnar að þessu sinni verður ungt fólk og fjölmiðlar. Ungmennafélag Íslands hefur ávallt lagt áherslu á lýðræðislega þátttöku ungs fólks og vandað hefur verið til dagskrár ráðstefnunnar. Þetta er í þriðja sinn sem þessi ráðstefna er haldinn en áður hefur hún verið á Akureyri og Laugum í Dalasýslu.

 

Lesa meira

Skráning hafin í Músiktilraunir 2012

musiktilraunir2012.jpgSkráning hljómsveita í Músiktilraunir 2012 hófst í dag. Magar austfirskar hljómsveitir hafa spreytt sig í keppninni í gegnum tíðina.

 

Lesa meira

Hildarleik hermanna fyrir 70 árum minnst

veturhus_hermynd3_jgh_web.jpgÞann 20. janúar síðastliðinn voru sjötíu ár liðin síðan heimilisfólkið við Eskifjörð björguðu yfir fjörutíu breskum hermönnum sem farið höfðu gangandi frá Reyðarfirði yfir fjöllin til Eskifjarðar.

 

Lesa meira

Tölvufíkn: Vaka frameftir og mæta þreyttir í skólann

img_3299.jpg

Tölvufíkn er vaxandi vandamál í heiminum sem verið er að takast á við. Algengara virðist verða að unglingar vaki frameftir í tölvuleikjum og mæti þreyttir og jafnvel seint í skólann daginn eftir. 

 

Lesa meira

Völva Agl.is: ESB viðræðum verður hætt

volvumynd_web.jpgAðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið verður hætt skyndilega á árinu 2012, sem völva Agl.is kallar ár vonar. Mikið umrót verður í íslenskum stjórnmálum þar sem útlit er fyrir að þrír af foringjum fjórflokksins svokallaða færi sig yfir á annan vettvang. Endurheimtur á fjármunum úr bankahruninu ganga hægt. Þetta er meðal þess sem fram kemur í sjöunda og síðasta hluta spárinnar.

 

Lesa meira

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar