Kristján L. Möller, samgönguráðherra, og Hanna B. Kristjánsdóttir, borgarstjóri í Reykjavík, undirrituðu í gær minnisblað um nýja samgöngumiðstöð í Vatnsmýrinni í Reykjavík. Á hún að hýsa alla samgöngustarfsemi á svæðinu, hvort sem Reykjavíkurflugvöllur verður þar í framtíðinni eða ekki. Framkvæmdir eiga að hefjast á þessu ári og samgöngumiðstöðin að vera komin í notkun eigi síðar en árið 2010. Þá var skrifað undir samkomulag um að skipa samráðsnefnd ríkis og borgar um framtíðarstaðsetningu flugvallarins.
Alcoa hefur skýrt frá því að tap fyrirtækisins á fyrsta fjórðungi ársins hafi numið 497 milljónum dollara, jafnvirði rúmlega 62 milljarða íslenskra króna. Fyrirtækið hefur verið rekið með tapi í tvo ársfjórðunga í röð vegna minnkandi eftirspurnar og lækkandi álverðs. Talið er að álbirgðir heimsins nemi fjögur- til fimmfaldri árlegri álframleiðslu alls á Íslandi. Þær eru taldar vera á milli 3,5 til 5 milljónir tonna.
Tæplega 17% samdráttur er í dagvöruverslun í mars á föstu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra. Þetta er mesti samdráttur á einu ári, sem mælst hefur frá því að farið var að birta smásöluvísitölu árið 2001.
Djúpavogsbúar tóku á móti nýjum bát til hafnar í gær. Það er Sæljós GK 185, sem er í eigu Ósness og Eyfreyjuness á Djúpavogi. Báturinn er keyptur frá Grindavík, er upphaflega smíðaður á Seyðisfirði árið 1968, stálbátur, 22 metra langur og tæp 65 brúttótonn. Hann var endursmíðaður 1998. Eigendurnir ætla að gera bátinn út til fjölveiða og eru meðal annars búnir að sækja um leyfi til hrefnuveiða.
Sýningin Fortíðar flögur opnar í Breiðdalssetri í Gamla kaupfélagshúsinu á Breiðdalsvík kl. 18 í dag. Verkin eru afrakstur fyrstu gestavinnustofu Breiðdalsseturs. Guðrún Sigríður Haraldsdóttir sýnir ný myndverk unnin upp úr ljósmyndaalbúmi dr. Stefáns Einarssonar frá Höskuldsstöðum, Breiðdal.
Í menningarmiðstöðinni Sláturhúsinu á Egilsstöðum stendur nú yfir svokallað Páska-Lan. Þarna mætist ungt fólk og spilar tölvuleiki, svo sem DoTa, Counter-Strike, Battlefield 1942, Quake3 og fleira. Páska-Lanið hófst seinni hluta mánudags og því lýkur í dag. Keppnin er fjáröflun til styrktar ferðahópi Menntaskólans á Egilsstöðum. Reikna má fastlega með að strákarnir tuttugu sem skráðu sig til leiks, því engin stúlka var skráð, séu komnir með skjálaga augu og heilabú eftir tveggja daga sleitulaust tölvugláp.
Framkvæmdasýsla ríkisins hefur auglýst eftir tilboðum í byggingu Gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs á Skriðuklaustri, en hún verður fyrsta byggingin hér á landi sem verður byggð samkvæmt vottuðum vistvænum byggingarstöðlum. Útboðið er unnið samkvæmt nýsamþykktri stefnu ríkisstjórnarinnar um vistvæn innkaup. Skóflustunga verður tekin að byggingunni 16. apríl að viðstöddum umhverfisráðherra og föruneyti.
Flest vélsleðaslys undanfarinna ára má rekja til þess að of hratt var ekið miðað við aðstæður. Mjög oft er erfitt að greina misfellur, hæðir og hóla frá öðru þar sem snjórinn framan við sleðann jafnar oft þessa hluti út, að því er segir í tilkynningu frá Forvarnarhúsi.
Hugsanlegt er að ekki verði af því að svo stöddu að tjaldsvæði Egilsstaðabæjar verði flutt undir Egilsstaðakoll eins og til stóð, heldur verði fyrrverandi athafnasvæði Barra við Kaupvang tekið undir tjaldstæði. Það svæði er mjög skammt frá núverandi staðsetningu tjaldsvæðis, sem orðið er úr sér gengið og átti að leggja af eftir síðasta sumar. Landið undir núverandi tjaldsvæði hefur verið í eigu Kaupfélags Héraðsbúa. Eiríkur Bj. Björgvinsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs, segir málið í vinnslu og verði það rætt í bæjarráði á morgun. Engin ákvörðun liggi fyrir.