Saga Unn opnar tvær sýningar um helgina
Listakonan Saga Unn opnar um helgina tvær sýningar, annars vegar myndlistarsýningu í Tehúsinu á Egilsstöðum, hins vegar innsetningu í Jensenshúsi á Eskifirði.Er ekki lengur opnar í Skaftfelli
Ný sýning, Er ekki lengur, opnar í listamiðstöðinni Skaftfelli á Seyðisfirði. Um er að ræða innsetningu egypsku listakonunnar Nermine El Ansari.Föndra ýmsar jólavörur til að styrkja ungmennafélagið á Djúpavogi
Máluð jólakort, handgert súkkulaði, jóla- og kertaskreytingar. Aðeins þrennt af því sem ungmennin í unglingaráði Neista á Djúpavogi hyggjast bjóða til sölu á sínum eigin bás á jólabasar kvenfélagsins Vöku sem haldinn verður í Löngubúð á morgun.
Verðlaun fyrir stuðning við hinsegin samfélagið á Austurlandi
Félagasamtökin Hinsegin Austurland hafa haft það að sið að veita viðurkenningar á aðalfundi sínum til fyrirtækja, stofnana og einstaklinga á Austurlandi sem á einhvern hátt hafa stutt réttindabaráttu hinsegin fólks. Austurfrétt var meðal þeirra sem fengu verðlaun.Jólafjör á Finnsstöðum nánast allan desember
Prufukeyrsla á jólaballi og jólaskemmtun almennt í desember í fyrra að Finnsstöðum í Eiðaþinghá tókst svo vel að nú ætlar fjölskyldan að bæta um betur og bjóða upp á hitt og þetta jólalegt, notalegt og skemmtilegt allar helgar fram að aðfangadegi.
„Ég vil bara að hún fái að vera hún sjálf og líði vel“
Anna Sigrún Jóhönnudóttir á Reyðarfirði er móðir átta ára gamals barns sem skilgreinir sig sem stúlku. Anna Sigrún segir kynið ekki skipta sig máli heldur að barninu líði vel og líðanin hafi sannarlega breyst þegar barnið kom út úr skápnum.Hefur gore-tex og gervihnetti fram yfir landpóstana
Einar Skúlason leggur á mánudagsmorgunn upp frá Seyðisfirði í fótspor landpóstanna eftir gömlu þjóðleiðinni norður til Akureyrar. Hann gerir ráð fyrir að vera um tvær vikur á leiðinni, eftir hvernig viðrar. Hægt er að senda jólakort með Einari til styrktar Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis.Snorravaka í Óbyggðasetrinu vekur athygli
Rúmlega 30 manns hafa þegar skráð þátttöku í sérstakri Snorravöku sem haldin verður í Óbyggðasetrinu í Fljótsdal á sunnudaginn kemur og skipuleggjendur búast við talsvert fleirum. Þar skal bæði minnast og varpa ljósi á líf og störf Snorra Gunnarssonar sem var þúsundþjalasmiður í orðsins fyllstu.