Umferðaröryggi og hestar

sigrun julia geirsdottirDaginn er tekið að lengja en þó vantar enn talsvert á að birtutími dagsins nægi þeim sem stunda útivistarsport. Hestamenn hér á Norðfirði eru flestir farnir að þjálfa hross sín enda blómlegt starf í gangi og framundan hjá Hestamannafélaginu Blæ.

Lesa meira

Nýbúinn – Íbúinn: Janúar

asdis helga bjarnadottir jan14Nú kom að því! Hvanneyringurinn, borinn og barnfæddur, ákvað að skipta um umhverfi. Sótti um vinnu og fékk, með aðsetur á Egilsstöðum, og hóf störf nú í byrjun árs. Fljótlega eftir að vilyrði fékkst fyrir starfinu sl. haust fór ég að leita að húsnæði. Ekki var hlaupið að því. Ekkert á leigu frá Íbúðarlánasjóði þó fjölmargar íbúðir væru þá á eignalista þeirra. Svörin frá starfsmanni sjóðsins voru: ,,Ég veit því miður ekki hvenær þær verða tilbúnar þar sem verið er að bíða eftir varahlutum í þær sem gæti tekið einhvern tíma."

Lesa meira

Austfirskur fréttaannáll 2013

mordmal adalmedferd egs webSegja má að skin og skýrir, eða öllu heldur glaðasólskin og snjókoma hafi skipst á í fréttum af Austurlandi árið 2013. Sumarið var einstaklega gott en inn á milli komu miklir ófærðarkaflar.

Lesa meira

Íslendingar vilja græða á kostnað þeirra sem minna mega sín

throstur jonsson 0004 webUndanfarin misseri hefur verið mikil umræða um olíuleit og vinnslu íslendinga á svonefndu Drekasvæði. Margir ganga með dollaramerkin í augunum og geta vart beðið þeirrar stundar að komast í skjótfenginn skyndigróðann, eins og Íslendingum er einum lagið.

Lesa meira

Viljum við hafa eigin rödd?

hrafnkell larusson headshotÞað er einn mælikvarða á heilbrigði lýðræðis í samfélögum, fámennum jafnt sem fjölmennum, hversu frjálsir fjölmiðlar sem þar starfa eru. Það er vel þekkt að þar sem lýðræði stendur veikum fótum (eða er ekki til staðar) eru fjölmiðlar háðir valdhöfum eða öðrum sterkum hagsmunaaðilum sem nota þá til að styrkja og efla eigin valdastöðu. Ágengni valdamikilla aðila gagnvart fjölmiðlum er líka vel þekkt í lýðræðissamfélögum. Slíkt er þó oftast falið eða gerist með lítt áberandi hætti, t.d. með því að þrengt er að fjölmiðlunum fjárhagslega eða með beinum og óbeinum ógnunum. En nóg um það – að sinni.

Lesa meira

Brunavarnir um jól og áramót

eldur brekka nesk des13 khÞað er mikilvægt að fara varlega með eld og rafmagnstæki með tilliti til brunahættu. Og aldrei mikilvægara en á aðventunni þegar meira er um kertaljós og ýmis skrautljós á heimilum og vinnustöðum. Að ekki sé talað um flugelda og blys um áramót og á þrettándanum.

Lesa meira

Af varðhundum, smiðum og málpípugerð

hrafnkell larusson headshotEitt mikilvægasta hlutverk frjálsra fjölmiðla er aðhaldshlutverk gagnvart ráðandi aðilum í samfélaginu, þeim sem fara með völd hvort sem þeir eru til þess kjörnir eða hafa öðlast valdastöðu sína með öðrum hætti. Þeim sem með orðum sínum og gjörðum hafa meiri áhrif á líf annarra en hinn almenni borgari.

Lesa meira

Bestu plötur ársins 2013

kiddi tonleikarÁrið hefur verið viðburðaríkt hjá austfirska trommaranum Kristni Snæ Agnarssyni. Hann gekk í byrjun árs til liðs við hljómsveit John Grant og hefur verið á ferðalagi með honum vítt og breitt um heiminn síðan í mars.

Lesa meira

100 ára saga KHB: Hversdagslíf í spéspegli

KHB-kapa-forsÍ fórum ritara 100 ára sögu Kaupfélags Héraðsbúa kom í ljós samantekt um daglegt líf í Kaupfélagi Héraðsbúa á Egilsstöðum. Þetta afrit er ódagsett en ber með sér að það er skrifað fyrir aldarfjórðungi og flutt á árshátíð starfsmanna félagsins, væntanlega á 75 ára afmæli þess árið 1984. Brugðið er upp mynd af daglegu lífi í fyrirtækjum félagsins á Egilsstöðum í spéspegli sem hér er birt lítið eitt lagfærð og stytt:

Lesa meira

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar