Er tómlæti að drepa svæðisfjölmiðlana?

hrafnkell larusson headshotFrá síðustu aldamótum hefur starfsemi fjölmiðla á Austurlandi dregist mjög mikið saman. Árið 1998 störfuðu 16 manns við hefðbundna fjölmiðla á Austurlandi (þ.e. í Múlasýslum). Árið 2006 voru þeir 11 en í dag eru þeir 6. Starfsemi landsmiðla sem áður var töluverð er að mestu horfin af svæðinu –fyrir nokkru síðan. Fréttaflutningi af svæðinu og innan þess er sinnt eftir sem áður en eðlilega er krafturinn minni þegar svo fáir starfandi fjölmiðlamenn eru eftir.

Lesa meira

Fortitude: Handritið er einhverjum að kenna

sigga lara fortitude„Vá, hvað Fortitude var leiðinlegt," er það eina sem ég hef séð sagt um málið á Facebook.

Mér þykir fjarskalega leitt að játa að ég er pínu sammála. Mér þykir það leitt vegna þess að auðvitað vildi ég að þættirnir sem teknir voru upp „hér fyrir austan," allir Austfirðingar léku í og einhverjir unnið við, væru góðir. Helst alveg fjarskalega góðir. En á þessu stigi málsins er ég alveg ferlega hrædd um að svo sé bara... ekki.

Lesa meira

Seyðfirðingar bjartsýnir á nýju ári.

thorvaldur johannssonÁramótabrennan logaði glatt, í blíðvirðinu, á milli Bjólfs og Strandatinds. Hún lýsti vel upp fjallahringinn þegar gefið var í á bálið. Skoteldar og blys flóðlýstu himinninn er nýtt ár gekk í garð og bergmál fjallanna kallaðist á við upplýstan himin.Mögnuð sjón og upphaf á nýju ári. Ljósaskiltið í rótum Bjólfs ,sem lýsir allt árið , breyttist kl. 12. í „Seyðisfjörður 120 ára „ Minnir okkur á að 120 ár eru liðin frá því að Seyðisfjörður fékk kaupstaðaréttindi árið 1895. Þá einn fjögurra kaupstaða á Íslandi.

Lesa meira

Gagnrýni: Hárið

harid va 0019 webLeikhópurinn Djúpið sýnir um þessar mundir leikverkið Hárið í Egilsbúð í Neskaupstað. Stefán Benedikt Vilhelmsson leikstýrði. Rýnandi Austurfréttar skellti sér á sýningu, en hitti reyndar á Júróvisíon-kvöldi Valentínusardags þannig að sjálfsagt hefur nú salurinn oftast verið setnari. Djúpsfólk lét það ekki á sig fá og skilaði áhugaverði sýningu.

Lesa meira

Seinna er of seint – íslensk náttúra treystir á okkur!

natturupassagrein aksUmræðan síðustu mánuði hefur dvalið töluvert við frumvarp um náttúrupassa og rétt okkar Íslendinga til að ganga óhindrað um íslenska náttúru eins og okkur hentar best. Nýframlagt frumvarp ráðherra hefur fengið bæði jákvæða og neikvæða umfjöllun og sitt sýnist hverjum.

Lesa meira

Ekki gera ekki neitt

gunnarg april1306Borgarfulltrúum Framsóknarflokksins hefur á stuttum tíma tekist að gera flokkinn eitraðan á landsvísu. Forusta flokksins verður hins vegar að axla ábyrgð á því að hafa ekki tekið í taumana og varið grunngildi flokksins.

Lesa meira

Fortitude: 2. þáttur. Myljandi spenna!

sigga lara jan15 0013 webJæja, þrátt fyrir ákveðnar efasemdir eftir síðasta þátt var ég orðin mjöööög spennt í gærkvöldi. Búin að fara í bað og koma mér svakalega vel fyrir í náttfötunum, undir sæng, fyrir framan sjónvarpið. Og var staðráðin í að horfa nú með jákvæðu gleraugunum á þetta alltsaman. Ég vil nefnilega fá Fortitude aftur austur. Stanley Tucci í ræktina. Dumbledore í kaupfélagið. Aukahlutverk fyrir alla. Allt þetta ætlaði ég að láta gerast, með hugarorkunni. Svo ég bað í hljóði til IMDB, krossaði putta og tær, og beið átekta.

Lesa meira

Fjarðabyggðarfundurinn á dögunum

krummi i rjodriFyrir nokkrum árum boðaði sveitastjórn Fjarðarbyggðar til samskonar fundar á Stöðvarfirði, þá fékk fólk, líkt og nú, að vita það, komið á fundinn að hann væri ekki um það sem stóð í auglýsingunni. Stöðfirðingum var sem sagt ekki ætlað að hafa, þá, skoðanir á neinu á fundinum nema sem snertu þennan friðsæla byggðakjarna. Fundarfólk sætti sig við orðinn hlut og viðraði þær skoðanir að hvað sem gert yrði í byggðinni þá mætti ekki spilla Balanum.

Lesa meira

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.