Tvenn verðlaun féllu í skaut Síldarvinnslunnar í Neskaupstað þegar
Íslensku sjávarútvegsverðlaunin voru afhent í síðustu viku. Alls voru
veitt sautján viðurkenningar til þeirra sem þykja hafa skarað fram úr í
fiskveiðum og sjávarútvegi bæði hérlendis og erlendis.
Hreindýraveiðitímabilinu lauk í dag þegar seinasta dýrið sem leyft var
að veiða á þessari vertíð var fellt. Góðir dagar í lok tímabilsins gerðu
veiðimönnum auðveldara að finna bráð sína.
Stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) klofnaði í
atkvæðagreiðslu um hvort setja ætti gerð jarðganga eða vega í forgang í
fjórðungnum. Jarðgöngin urðu ofan á í vali um forgangsröðum verkefna
innan landshlutans fyrir fjárfestingaráætlun ríkisins á næsta ári.
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og fyrsti þingmaður
Norðausturkjördæmis, segir slaginn um framtíð Norðfjarðarganga standa um
hversu framarlega þau verði í nýrri samgönguáætlun sem tekin verði
fyrir á þingi í haust. Þingmenn kjördæmisins séu sammála um að þau eigi
að ganga fyrir öðrum framkvæmdum í kjördæminu.
Lögreglumenn á Austurlandi skora á ráðherra að ganga til samninga við
Landssamband lögreglumanna og leiðrétta laun þeirra í samræmi við aðrar
stéttir sem margar hafa náð fram betri samningnum í krafti
verkfallsréttar.
Vinnsla og frysting á makrílafurðum til manneldis hjá
uppsjávarfrystihúsi HB Granda á Vopnafirði hefur meira en tvöfaldast nú á
vertíðinni í samanburði við vertíðina í fyrra. Búið er að frysta alls
tæplega 11.000 tonn af makrílafurðum á Vopnafirði en alla vertíðina í
fyrra nam magnið tæplega 5.000 tonnum.
Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, vill skoða forsendur þess að
forveri hennar í embætti snéri við úrskurði Skipulagsstofnunar og
heimilaði byggingu Kárahnjúkavirkjunar á sínum tíma. Ráðherrann hefur
áhyggjur af bæði lífríki og landbroti.
Ágúst Ármann Þorláksson, tónlistarmaður og fyrrverandi skólastjóri
Tónskóla Neskaupstaðar, varð bráðkvaddur að heimili sínu í Neskaupstað
mánudaginn 19. september, 61 árs að aldri. Hann hefur í áratugi verið
einn af lykilmönnunum í austfirsku tónlistarlífi í áratugi.
Heildargreiðslur vegna starfsloka Ólafs Hr. Sigurðssonar sem bæjarstjóra
Seyðisfjarðarkaupstaðar í vor nema 4,6 milljónum króna. Bæjarfulltrúi
segir að gengið hafi verið frá samningum án samþykkis bæjarráðs eða
bæjarstjórnar.
Almannavarnir í umdæmi lögreglustjórans á Eskifirði í samvinnu við
almannavarnardeild Ríkislögreglustjóra standa á morgun, laugardaginn 17.
september, fyrri hópslysaæfingu við Reyðarfjörð.
Stóriðjuskóli Fjarðaáls á Hrauni við Reyðarfjörð var settur í fyrsta
sinn í morgun,. Þrjátíu manns, allt starfsfólk álversins, settust þá á
skólabekk í kennslustofu álsversins í því skyni að afla sér
fjölbreyttrar menntunar, sem bæði er ætlað að nýtast í störfum þeirra í
álverinu en einnig til frekara náms síðar. Alls sóttu yfir áttatíu manns
um skólavist, en meðal umsóknaskilyrða er að lágmarki þriggja ára
starfsaldur hjá Fjarðaáli.