Breiðdalsvík: Ekki verið landað meiru í rúm 15 ár
Rúmlega 1300 tonnum var landað á Breiðdalsvík á seinasta fiskveiðiári. Ekki hefur meiri afli komið þar á land frá árinu 1995.
Rúmlega 1300 tonnum var landað á Breiðdalsvík á seinasta fiskveiðiári. Ekki hefur meiri afli komið þar á land frá árinu 1995.
Sveitarstjórn Djúpavogshrepps leitar leiða til að selja fasteignir í eigu sveitarfélagsins til að rétta við fjárhag þess. Hann hefur verið bágborinn um nokkurt skeið og eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga bæði fylgst sérstaklega með Djúpavogshreppi og aðvarað hann. Milliuppgjör sveitarfélagsins var undir væntingum.
Minnihluti fræðslunefndar Fljótsdalshéraðs vill að skoðaðir verði möguleikar á að sameina tónlistarskólana í sveitarfélaginu og unglingadeildir Fellaskóla og Egilsstaðaskóla. Meirihlutinn vill skoða aðrar hagræðingarleiðir. Nefndin er þó einhuga um að hafin verið vinna við sameiningu leikskólanna Tjarnarlands og Skógarlands.
Tíu dagar eru enn í að rjúpnaveiðar hefjist í ár og kvótinn er af skornum skammti. Um helgina sást samt til rjúpnaskyttu á þjóðveginum um Jökuldal.
Vinnubúðir Alcoa Fjarðaáls, sem standa að Hrauni í Reyðarfirði, verða þar áfram fram á vor. Sveitarfélagið Fjarðabyggð vill að þær verði horfnar fyrir lok næsta árs.
Nýtt met var slegið í veiði í Breiðdalsá í sumar þegar 1430 laxar komust á land. Stærsti laxinn var tíu kílógramma hrygna. Ríflega fimm hundruð laxar veiddust á Jöklusvæðinu.
Heilsueflandi framhaldsskóli, verkefni landlæknisembættisins var hleypt af stokkunum í Verkmenntaskóla Austurlands miðvikudaginn þann 19. október.
Landsbankinn hefur farið fram á að fjórar fasteignir í eigu Lífsvals ehf. í sveitarfélaginu Hornafirði verði settar á nauðungauppboð.
Alcoa Fjarðaál á í viðræðu við Landsvirkjun um kaup á orku fyrir hugsanlega stækkun álversins í Reyðarfirði. Allt að tvö hundruð manns gætu fengið vinnu við stækkunina sem yrði upp á 40 þúsund tonn.
Opinn fundur um samgöngur og ferðamál verður haldinn á Hótel Álfheimum, Borgarfirði eystri, á morgun. Fundurinn hefst klukkan níu í fyrramálið og stendur fram yfir kaffi.
Fyrirtækið ALUCAB ehf. áformar að reisa álkaplaverksmiðju á Reyðarfirði. Fyrirtækið hefur fengið samþykki bæjaryfirvalda á álversreitnum.
Austfirðingar eru slegnir eftir atburði gærdagsins þar sem stúlka á átjánda ári fórst í bílslysi á Fagradal og rúmlega fertugur karlmaður dó í vinnuslysi á Djúpavogi. Bænastund verður þar í kvöld.
Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.