Stapi niðurfærir kröfu í Straum
Krafa Stapa lífeyrissjóðs í þrotabú Straums Burðaráss hefur verið færð niður að fullu í ársreikningum félagsins. Óvíst er um afdrif hennar en hún hefur þó nokkur áhrif á afkomu sjóðsins.
Björn Hafþór hættir í vor
Björn Hafþór Guðmundsson, sveitarstjóri í Djúpavogshreppi, ætlar ekki að halda áfram í því starfi eftir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Þetta staðfesti Björn Hafþór í samtali við agl.is.
Fljótsdalshreppur stöðvar útboðsferil vegna byggingar Laugarfellsskála
Hreppsnefnd Fljotsdalshrepps ákvað á fundi sínum 15. apríl síðastliðinn að stöðva útboðsferli vegna byggingar Laugafellsskála og bjóða verkið út aftur í almennu útboði.Rafiðnaðarsamband Íslands veitir myndalega styrki
Rafiðnaðarsamband Íslands hélt Sambandsstjórnarfund sinn á Hótel Héraði á Egilsstöðum, síðasta fimmtudag og föstudag 6. og 7 mai. Í tilefni fundarins úthlutaði styrktarsjóður félagsins myndalegum fjárstyrkjum til góðgerðamála sem alls námu einni miljón króna.Vegur úr Hrafnkelsdal, tillaga að matsáætlun
Tillaga að matsáætlun fyrir veg inn úr Hrafnkelsdal, inn á Kárahnjúkaveg um Tungusporð, hefur verið lögð inn til málsmeðferðar hjá Skipulagsstofnun samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum.Steingrímur á Seyðisfirði
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, verður viðstaddur þegar kosningaskrifstofa flokksins á Seyðisfirði verður opnuð í kvöld klukkan 20:00 Allir eru velkomnir og heitt verður á könnunni.
Helga ætlar ekki að halda áfram sem bæjarstýra
Helga Jónsdóttir, bæjarstýra í Fjarðabyggð, sækist ekki eftir að verða ráðin aftur í starfið þegar ráðningartímabil hennar rennur út eftir sveitarstjórnarkosningar í vor. Helga tilkynnti þetta á bæjarráðsfundi í morgun. Hún segir dræmar undirtektir ríkisins við Norðfjarðargöng mestu vonbrigðin á starfstímabilinu.
Viðræðum hætt um sameiningu Breiðdals og Fjarðabyggðar
Viðræðum hefur verið hætt um sameiningu sveitarfélaganna Breiðdalshrepps og Fjarðabyggðar. Breyttar fjárhagsforsendur og hugmyndir um sameiningu allra austfirsku sveitarfélaganna eru ástæður þess að viðræðunum er lokið.
Verkalýðshreyfingin hefur ekki staðið sig
Forsvarsmenn AFLs – starfsgreinafélag, segja að verkalýðshreyfingin hafi ekki enn tekið forustuna í uppbyggingu íslensks samfélags eftir efnahagshrunið eins og þurft hefði.