Kominn tími til að ræða um snjallt dreifbýli
Málþing verður haldið samtímis á sex stöðum á landinu, þar á meðal Reyðarfirði, á fimmtudag um tækifæri dreifðra byggða í fjórðu iðnbyltingunni. Framtíðarfræðingur segir ýmis tækifæri til staðar ef innviðirnir eru fyrir hendi.Átök verða um forgangsröðun samgönguframkvæmda
Fyrsti þingmaður Norðausturkjördæmis býst við hörðum átökum, þótt þau muni ekki endilega fara hátt, um forgangsröðun þegar endurskoðuð samgönguáætlun verður lögð fyrir á þingi í haust. Hann segir þingmenn kjördæmisins samstíga í stuðningi sínum við jarðgöng til Seyðisfjarðar.Tekjur Austfirðinga 2019: Fjarðabyggð
Austurfrétt birtir í dag árlega samantekt á tekjum Austfirðinga. Listarnir byggjast á álagningarseðlum ríkisskattstjóra. Þeir eru birtir með fyrirvara um kærumál vegna útreikninga embættisins og prentvillur. Tekjurnar eru gefnar upp í krónum á mánuði.Verja þarf íbúabyggð á Seyðisfirði vegna skriðuhættu
Í nýju áhættumati vegna ofanflóða á Seyðisfirði stækka hættusvæði í suðurbænum undir Neðri-Botnum talsvert vegna þess að hætta af völdum stórra skriðna er metin meiri en áður. Það kallar á varnaraðgerðir fyrir íbúðabyggðina og aukna vöktun.
Opin fyrir hugmyndum til að minnka kolefnisspor skólamáltíða
Síðustu daga hefur skapast umræða um skólamáltíðir vegna áskorunar sem Samtök grænkera á Íslandi sendu á ríki og sveitarfélög til að hvetja til aðgerða vegna hamfarahlýnunnar.
Rúnasteinn afhjúpaður á Bustarfelli
Rúnasteinn sem fannst í Hofkirkjugarði fyrir rúmu ári verður afhjúpaður til sýnis á Minjasafninu á Bustarfelli síðar í dag. Talið er að steinninn sé í hópi yngri rúnasteina sem fundist hafa hér á landi.Búið að malbika Njarðvíkurskriður
Vegaframkvæmdir hafa staðið yfir á Borgarfjarðarvegi í sumar í Njarðvík og Njarðvíkurskriðum en í gærkvöldi var klárað að leggja bundið slitlag á veginn.
Mikilvægur áfangi: Hjúkrunarfræðingur ráðinn á Borgarfjörð
Hjúkrunarfræðingur hefur verið ráðinn til starfa á Borgarfjörð eystri á ný, en enginn hjúkrunarfræðingur hefur verið þar búsettur síðustu fjögur ár. Borgfirðingar segja um öryggismál að ræða að hafa fagmanneskju í firðinum til að sinna bráðatilvikum.
Aflahæsti strandveiðibáturinn frá Djúpavogi
Strandveiðum ársins lauk í síðustu viku. Aflahæstur á strandveiðum 2019 var Jón Ingvar Hilmarsson á Birtu SU 36 sem gerir út frá Djúpavogi.
Tekjur Austfirðinga 2019: Fljótsdalshérað
Austurfrétt birtir í dag árlega samantekt á tekjum Austfirðinga. Listarnir byggjast á álagningarseðlum ríkisskattstjóra. Þeir eru birtir með fyrirvara um kærumál vegna útreikninga embættisins og prentvillur. Tekjurnar eru gefnar upp í krónum á mánuði.Sjúklingur veittist að lækni á Reyðarfirði
Sjúklingur réðst á lækni á mánudaginn var á Reyðarfirði. Þetta staðfesti Þórhallur Árnason, aðalvarðstjóri lögreglunnar á Austurlandi, í samtali við Austurfrétt.