Ítarleg leit var gerð að þremur níu ára gömlum stelpum á Egilsstöðum í kvöld. Þær komu fram um miðnættið inni á Völlum. Leit hafði þá staðið í um einn og hálfan tíma.
Nóró-veirusýking sem upp kom á hjúkrunardeild HSA á Egilsstöðum er á undanhaldi. Stefnt er að því að opna deildina á ný á föstudag eftir viku einangrun.
Ágætur gangur er í kolmunnaveiðum en skipin eru flest að veiðum innan færeysku lögsögunnar þótt aflanum sé landað á Austfjörðum. Barði dró Bjart til hafnar í Neskaupstað í gærkvöldi eftir að vélarbilun kom upp í síðarnefnda skipinu.
Bárður Jónasson, verkstjóri og oddviti Vopnafjarðarhrepps skipar efsta sætið á lista Framsóknarfélags Vopnafjarðar og óháðra fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Þórunn Egilsdóttir, þingmaður sem var oddviti framan af kjörtímabilinu skipar heiðurssætið.
Fjarðalistinn mælist með tæplega 40% fylgi í Fjarðabyggð í skoðanakönnum sem birt var í dag. Listinn vinnur mann af Sjálfstæðisflokki en meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks heldur. Töluverðar sveiflur virðast á fylgi.
Ákvörðun Vísis um að hætta núverandi fiskvinnslu á Djúpavogi og flytja til Grindavíkur er harðlega fordæmd í ályktun sem samþykkt var á aðalfundi AFLs – starfsgreinafélags um síðustu helgi.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra og fyrstu þingmaður Norðausturkjördæmis, gat ekki sótt fund þriggja sveitarfélaga með stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi fyrir skemmstu vegna annarra fundarhalda.
Hraðar hefur gengið að greiða niður skuldir Fjarðabyggðar heldur en áætlað var. Uppgangstímar í atvinnulífi hafa nýst til þess og samstaða verið í bæjarstjórn um stærri atriði. Hagnaður af rekstri sveitarfélagsins nam tæpum 940 milljónum króna á síðasta ári.
Bæjaryfirvöld í Fjarðabyggð hafa hætt við að setja leik- og grunnskólana á Fáskrúðsfirði undir einn stjórnanda á næsta skólaári. Aðgerðin mætti harðri andstöðu meðal starfsmanna og foreldra í leikskólanum.
Héraðsdómur Reykjavíkur ógilti í gær kaup Síldarvinnslunnar á útgerðarfélaginu Berg-Huginn í Vestmannaeyjum. Vestmannaeyjabær höfðaði mál og taldi sig eiga forkaupsrétt á félaginu. Dómari taldi þau rök að ekki væri verið að kaupa fiskiskip heldur hlutabréf í útgerðarfélagi haldlítil.
Þrír þingmenn Norðausturkjördæmis hafa ekki svarað fyrirspurn Austurfréttar um hvers vegna þeir hafi ekki sótt fund Sambands sveitarfélaga á Austurlandi með forsvarsmönnum Djúpavogshrepps, Seyðisfjarðarkaupstaðar, Breiðdalshrepps og útgerðarmönnum.
Rúmlega 23 milljónum var veitt til framkvæmda við þrjár austfirskar náttúruperlur, Teigarhorn, Stórurð og Hengifoss, þegar úthlutað var úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir helgi. Styrkir voru á meðal þeirra tíu stærstu sem veittir voru en alls var úthlutað til fimmtíu verkefna að þessu sinni.