Austfirðingar eru hvattir til að mæta á borgararfund um endurskoðun stjórnarskrárinnar í annað kvöld sem haldinn er á Hótel Héraði frá klukkan
20:00-22:00. Stjórnlaganefnd og Samband sveitarfélaga í
Austurlandskjördæmi standa að fundinum. Fundurinn er kynningarfundur um
tjórnlagaþing og Þjóðfund 2010 auk þess sem kallað er eftir sjónarmiðum íbúa.
Landssamband hestamanna mótmælir því að banna eigi umferð um Vonarskarð
innan Vatnajökulsþjóðgarðs. Þau gera verulegar athugasemdir við
takmarkanir á hestaumferð í þjóðgarðinum.
Alcoa Fjarðaál hefur sótt um starfsleyfi fyrir meiri framleiðslu en það
hefur í dag. Það kann að hafa í för með sér meiri brennisteinslosun en
er í dag.
Mikið hóf var haldið í veiðihúsinu í Breiðdal fyrir viku í tilefni þess
að eitt þúsund laxar voru þá komnir á land úr ánni í sumar. Þúsund laxa
múrinn hefur ekki áður verið rofinn.
Jaxlarnir, hópur eldri björgunarsveitarfélaga, hittist á Patreksfirði
eftir tvær vikur. Austfirðingar hafa jafnan tekið virkan þátt í
samkomunum og undirbúningin þeirra.
Ákveðið hefur verið að endurreisa Reyðarfjarðarlínu sem varnarlínu fyrir
sauðfjársmitsjúkdóma. Ástæðan er garnaveiki sem kom upp í Fáskrúðsfirði
í vetur.
Vínbúð hefur opnað í húsnæðinu sem áður hýsti lögreglustöðina á
Seyðisfirði. Fangaklefarnir hafa verið brotnir niður þannig að lögreglan
hefur enga slíka aðstöðu á staðnum. Bæjarstjórinn segir um klassíska
aðferðafræði ríkisins að ræða þar sem peningur sparist hjá ákveðnum
embættum en ekki ríkinu sjálfu.
Helga Jónsdóttir, fyrrum bæjarstýra í Fjarðabyggð, segist aldrei hafa
ætlað sér að gegna starfinu lengur en eitt kjörtímabil. Hún segist
skilja sátt við starfið og sveitarfélagið standi styrkum fótum þótt það
skuldi mikið.
Stjórnlaganefnd og Samband sveitarfélaga á Austurlandi halda borgarafund
um endurskoðun stjórnarskrárinnar á Hótel Héraði þriðjudaginn 5.
október frá klukkan 20:00-22.00. Fundurinn er kynningafundur um
stjórnlagaþing og Þjóðfund 2010 auk þess sem kallað er eftir sjónarmiðum
íbúa.
Spili var stolið af bíl björgunarsveitarinnar Ársólar þar sem hann stóð utan við félagshúsnæðið á Reyðarfirði. Um er að ræða spil af Warn-gerð, 9000punda og uppgötvaðist að það væri horfið síðastliðinn laugardag.
Formaður Knattspyrnufélags Fjarðabyggðar segir félagið stefna að því að
halda öllum lykilmönnum sínum. Liðið féll úr 1. deild um helgina eftir
9-1 ósigur gegn Þór á Akureyri.