Tæplega 30 starfsmenn fiskvinnslu Vísis á Djúpavogi fóru með morgunflugi frá Egilsstöðum klukkan níu áleiðis til Grindavíkur til að skoða aðstæður þar. Vísir hyggst hætta bolfiskvinnslu á Djúpavogi í sumar og hefur boðið starfsmönnunum að flytjast suður.
Andrés Skúlason, oddviti Djúpavogshrepps, fer fyrir F-lista framfara á Djúpavogi. Sóley Dögg Birgisdóttir gefur einnig kost á sér áfram í sveitarstjórn.
Elfa Hlín Pétursdóttir, verkefnastjóri hjá Austurbrú, verður í forsvari fyrir Seyðisfjarðarlistann, nýtt framboð á Seyðisfirði. Í kynningu frá listanum, sem fengið hefur listabókstafinn L, segir að hann sé hópur af fólki sem vilji leggja samfélaginu á Seyðisfirði lið, óháð flokkapólitík.
Gert er ráð fyrir að einn sýslumaður og einn lögreglustjóri verði yfir öllu Austurlandi miðað við frumvörp sem samþykkt voru á Alþingi í morgun. Ekki er gert ráð fyrir uppsögnum starfsmanna og ekki hefur verið ákveðið var embættin verða með aðsetur.
Endurreisn – listi fólksins er nýtt framboð á Fljótsdalshéraði sem Áskell Einarsson, bóndi í Eiðaþinghá, leiðir. Slagorð Listans er „Við gerum allt fyrir alla, en meira fyrir suma (með fyrirvara um efndir)".
Arnbjörg Sveinsdóttir, forseti bæjarstjórnar og fyrrverandi þingmaður, er efst á lista Sjálfstæðisflokksins á Seyðisfirði fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Konur skipa fjögur efstu sætin á listanum.
Rán Freysdóttir innanhússarkitekt, skipar efsta sætið á Óskalistanum sem er nýtt framboð í Djúpavogshreppi. Hún segir þau vilja tryggja aukið lýðræði og gera sveitarfélagið að ákjósanlegum stað til að búa á.
Vilhjálmur Jónsson, bæjarstjóri, fer fyrir framboði B-lista, framsóknar-, samvinnu- og félagshyggjufólks á Seyðisfirði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Þrír karlar eru í efstu sætum listans.
Stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi vill að stjórnvöld beiti sér í málefnum sjávarbyggða á Austurlandi. Jafnframt vill hún að þingmenn fundu með bæjarstjórn Seyðisfjarðar og forsvarsmönnum Smyril-Line til að ræða ferjumál á Seyðisfirði.