Björg Björns: Var mjög áfram um að Steini héldi áfram
Fljótsdalshérað og Fjarðabyggð mætast í fyrstu Útsvarsviðureign tímabilsins á RÚV í kvöld. Liðin áttust við í undanúrslitum í vor þar sem Fljótsdalshérað hafði betur og vann keppnina. Liðsmaður Fljótsdalshéraðs reiknar með að lið Fjarðabyggðar leiti hefnda nú.
Jón í Möðrudal gat allt nema að úthýsa gestum
Út september stendur yfir sýning um Jón A. Stefánsson, bónda, fjöllistamann og þúsundþjalasmið frá Möðrudal á Fjöllum í Sláturhúsinu á Egilsstöðum. Jón var goðsögn í lifanda lífi og virðast listaverk hans á ný vera að öðlast sess í austfirskri menningu.
Má bjóða þér að bjóða í málverk?
„Það er annað hvort að flytja þetta allt suður eða bjóða fólki að kaupa falleg málverk,“ segir Rán Freysdóttir, arkitekt og rekstraraðili Löngubúðar á Djúpavogi, en sumaropnun hennar lýkur á fimmtudaginn.Heiða Dögg: Sögðum strax í vor að við ætluðum að vera áfram
Fljótsdalshérað og Fjarðabyggð ríða á vaðið í Útsvari vetrarins. Liðin mættust síðast í undanúrslitum í vor þar sem Héraðsliðið hafði betur og vann síðan keppnina. Fjarðabyggð mætir til leiks með óbreytt lið.
Tónleikar og fyrirlestur um mannréttindi: Strom & Wasser á ferð um Austfirði
Þýska jazzsveitin Strom & Wasser er á ferð um Austfirði en hún kemur fram í Valaskjálf í kvöld með þekktum íslenskum tónlistarmönnum á borð við Ragnheiði Gröndal og Agli Ólafssyni. Forsprakki sveitarinnar er baráttumaður fyrir mannréttindum og verður með fyrirlestur um aðbúnað flóttamanna í Menntaskólanum á Egilsstöðum í dag.
„Dæmigerð saga af hinu íslenska fiskeldi“
„Við ætluðum að fara í marhnútaeldi, veiddum marhnúta heilan dag og slepptum þeim í þró niður við bryggju,“ segir Kastljósstjarnan Helgi Seljan í þættinum Að austan á N4, en þar greinir Helgi frá uppvaxtarárum sínum á Reyðarfirði, ungliðapólitíkinni og háleitum framtíðardraumum.Innrás úr Austri: Austfirðingar kallaðir til í Hörpu
Stórleikar með úrvali austfirskra tónlistarmanna verða haldnir í Hörpu í Reykjavík á laugardagskvöld. Forsprakki tónleikanna hlakkar til að koma brottfluttum Austfirðingum og forvitnum borgarbúum á óvart.