Barnakór Egilsstaðakirkju sýnir frumsaminn söngleik - Myndir
Barnakór Egilsstaðakirkju sýnir á morgun söngleik sem sérstaklega hefur verið saminn fyrir kórinn. Kórstjórinn segir kórstarfið vera að eflast og sýningu sem þessa gefa því enn frekar byr undir báða vængi.Völdu hamborgarhrygginn því ekki var hægt að selja pizzu með rjúpu
Veitingastaðurinn Askur á Egilsstöðum setti í byrjun desember á matseðil tvær sérstakar jólapizzur. Önnur er með hamborgarhrygg og gljáðum ananas en hin með lakkrístoppi. Rekstrarstjóri staðarins segir starfsfólkið hafa lagst í mikla tilraunir við þróun pizzanna.Jólaálfar með óskunda í Safnahúsinu á Egilsstöðum
Snemma í þessum mánuði varð starfsfólkið í Safnahúsinu á Egilsstöðum vart við tvo óboðna gesti í húsinu. Þar um að ræða tvo jólaálfa sem ekkert hefur leiðst að gera þar prakkarastrik af ýmsu tagi. Það meðal annars orðið til þess að héraðsskjalavörður hefur svo rifið hár sitt og skegg vegna þessa allan mánuðinn að lítið er orðið eftir.
Færði björgunarsveit Gerpis gjöf fyrir að bjarga ömmu sinni
Ung stúlka í Neskaupstað, Emma Sólveig Loftsdóttir, kom færandi hendi í hús björgunarsveitarinnar Gerpis fyrir skömmu og afhenti liðsmönnum tuttugu þúsund krónur sem hún hafði safnað á eigin spýtur. Gjöfin var þakklætisvottur fyrir að sveitin bjargaði ömmu hennar úr snjóflóði á síðasta ári.
Héldu jólastund við Helgustaðanámu
Hópur útivistarfólks kom saman við Helgustaðanámu í utanverðum Reyðarfirði í gærkvöldi og hélt þar var litla aðventustund. Hópurinn hefur hist reglulega í haust og farið út að ganga í myrkrinu.Vel yfir fimm þúsund manns sótt sýningar Skaftfells á árinu
Enn eitt árið fagnar myndlistarmiðstöðin Skaftfell á Seyðisfirði stórkostlegri aðsókn en vel yfir fimm þúsund einstaklingar sóttu þær átta sýningar sem fram fóru í aðalsýningarsal miðstöðvarinnar þetta árið.