Austurglugginn kemur í sumar út á föstudögum. Fyrir mistök komst blaðið ekki til Vopnafjarðar fyrir póstdreifingu í dag og því kemur blaðið ekki fyrr en á mánudag til lesenda. Eru þeir beðnir velvirðingar á þessu og vonað að Austurglugganum verði fyrirgefið í þetta skiptið.
Dagana 13.-15. júní stóð hestamannafélagið Blær fyrir æskulýðsdögum á félagssvæði sínu að Kirkjubólseyrum í Norðfirði. Er óhætt að segja að þar hafi verið líf og fjör en rúmlega 40 börn og unglingar tóku þátt í ár og voru með aðstandendum þeirra um 100 manns á svæðinu þessa daga. Í dag og á morgun fagnar Blær fjörtíu ára starfsafmæli félagsins.
Fulltrúar Landsvirkjunar og Vegagerðarinnar hittust í gær og ræddu á fundi hverjir gætu orðið hugsanlegir veghaldarar allra þeirra vega og slóða sem orðið hafa til vegna Kárahnjúkavirkjunar og einnig þeirra sem fyrir voru á hinu víðfeðma svæði sem áhrifasvæði virkjunarinnar nær yfir. Engar ákvarðanir hafa verið teknar og eru þessi mál á umræðustigi enn sem komið er. Hreggviður Jónsson tók árið 2004 saman skýrslu um tilurð vega á svæðinu og meðal annars eru þar fjörtíu ára gamlir vegir sem RARIK lét gera. Landsvirkjun og Vegagerðin ákveða hvaða vegi fyrirtækin hyggjast eiga og reka áfram og sveitarfélögin Fljótsdalshreppur og Fljótsdalshérað þurfa svo væntanlega að gera upp við sig hvort og þá hvaða vegi þau hyggjast ábyrgjast sem veghaldarar.
Nýr forstöðumaður bókasafnsins í Neskaupstað, Óskar Þór Þráinsson, hefur hafið störf. Óskar Þór er nýfluttur á Norðfjörð og mun sjá um rekstur almenningsbókasafnsins í Neskaupstað og Skólabókasafns Nesskóla. Óskar Þór er bókasafns- og upplýsingafræðingur og hefur starfað á sviði skjalastjórnunar og upplýsingaþjónustu undanfarið ár en hefur mikla reynslu og þekkingu á bókmenntum, þjónustu, rafrænum miðlum og upplýsingatækni. Óskar Þór býður bæjarbúa og sveitamenn á öllum aldri velkomna á bókasafnið og kallar eftir óskum og hugmyndum, nú eða bara spjalli yfir kaffibolla.
Góðar horfur eru á mörkuðum fyrir síldarafurðir nú í upphafi veiða á norsk-íslensku síldinni, að því er Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, sagði í samtali við Fiskifréttir í gær. Mikil áhersla er lögð á síld til manneldis. Hjá Síldarvinnslunni eru aðallega frystir flapsar fyrir Austur- Evrópumarkað. Gunnþór sagði að síldin seldist ágætlega þrátt fyrir efnahagsþrengingar margra ríkja í austri enda væri síldin ódýr vara. Verð á frosinni síld hefur verið nokkuð stöðugt í erlendri mynt en hefur þó heldur hækkað. Skilaverð er í kringum 900-1.100 dollarar á tonnið. Gott verð á bræðsluafurðum.
Á mánudag verður undirritað samkomulag um stofnun og starfsemi nýrrar Matvælamiðstöðvar Austurlands. Hún verður til húsa í Mjólkurstöð MS á Egilsstöðum. Að henni koma Matís, Auðhumla/MS, mjólkurframleiðendur á Héraði, Búnaðarsamband Austurlands, Þróunarstofa Austurlands og sveitarfélagið Fljótsdalshérað. Á næstunni mun Matís ráða starfsmann að Matvælamiðstöðinni og húsnæðið verður undirbúið fyrir starfsemina. Í Matvælamiðstöð Austurlands verður samstarf um vöruþróun og rannsóknir á mjólkurafurðum o.fl.
Fyrir nokkru lauk lauk tilraunaborunum á Fagradal á Fljótsdalshéraði, sem leiddu til þess að þar fannst mikið af afar góðu neysluvatni. Gæði neysluvatns í þéttbýli sveitarfélagsins, sérstaklega í Fellabæ, hafa ekki verið í nógu góðu lagi. Hitaveita Egilsstaða og Fella, sem jafnframt fer með neysluvatnsmálin, vinnur nú að undirbúningi framkvæmda sem gert er ráð er fyrir að hefjist síðla sumars.
Helga Jónsdóttir, bæjarstýra í Fjarðabyggð, var meðal þeirra tíu sem í dag fengu fálkaorðuna. Orðan var afhent af forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Helga hlaut riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu fyrir framlag sitt til opinberrar stjórnsýslu.