Um allnokkurt skeið hefur verið unnið að undirbúningi tilraunaverkefnis í húshitun á Hallormsstað. Áætlað er að setja upp tæknivædda kurlkyndistöð sem sér grunnskólanum, íþróttahúsinu, sundlauginni, Hússtjórnarskólanum, hóteleiningu og nokkrum íbúðarhúsum á staðnum fyrir kyndingu, en undirbúningur er nú á lokastigi.
Lokið er skráningu til náms í Framhaldsskóla Austur-Skaftafellssýslu, FAS, á nýhafinni önn. Alls eru skráðir 340 nemendur við skólann. Aðeins einu sinni áður hafa verið fleiri nemendur en það var á haustönn 2007 þegar þeir voru 360 og þar af um 130 í skipstjórnarnámi. Þá voru aðstæður nokkuð sérstakar því um áramótin 2007-2008 breyttust lög um skipstjórnarnám.
Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs hefur samþykkt að sveitarfélagið gerist aðili að Evrópusáttmála um jafna stöðu kvenna og karla í sveitarfélögum og héruðum. Var tillaga þar um samþykkt samhljóða á fundi bæjarstjórnar um miðjan janúar.
Búast má við mjög snörpum vindhviðum í Öræfasveit og NV-lands, að sögn Veðurstofunnar. Norðaustan og austan 8-15 metrar á sekúndu eru víðast hvar á landinu en 13-18 m/s norðvestanlands og með suðausturströndinni. Síðdegis lægir suðaustanlands en áfram verður hvassviðri norðvestantil á landinu. Búist er við rigningu með köflum en slyddu eða snjókomu til fjalla en úrkomulítið á Norðurlandi og austanlands um hádegi. Hiti verður 1 til 8 stig, hlýjast suðaustanlands.
Sveitarstjórn Breiðdalshrepps samþykkti á fundi sínum 16. janúar síðastliðinn að lýsa ánægju með þá uppbyggingu sem nú á sér stað á vegum félagsins Festarhalds varðandi áform um matvælavinnslu í frystihúsinu á Breiðdalsvík. Sigurjón Bjarnason á Egilsstöðum fer fyrir hópi áhugasamra aðila um slíka matvælavinnslu þar og er verið að hleypa hugmyndinni af stokkunum.
Um þrjátíu manns þegar mest lét stóðu mótmælavakt í miðbæ Egilsstaða í kvöld og kröfðust þess að ríkisstjórnin færi frá. Voru mótmælendur með gjallarhorn og ýmis ásláttarhljóðfæri til að undirstrika kröfu sína. ,,Ekki meir Geir" hljómaði í kvöldloftinu. ,,Við ætlum að hittast hér aftur annað kvöld kl. 20 og halda áfram mótmælum" sögðu ungar konur sem staðið höfðu mótmælavaktina frá því um kvöldmatarleytið. Fólkið kveikti eld á planinu og notaði til þess vörubretti. Óeinkennisklæddur lögreglumaður birtist þegar líða tók á mótmælafundinn og tók mynd af viðstöddum. Fundurinn fór einkar friðsamlega fram.
Norsk-íslensk síld er nú unnin á vöktum í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar hf. Það var færeyska skipið Fagraberg FD-1210 sem kom með um 1.400 tonn til vinnslu. Vinnsla hófst síðustu nótt og stendur fram á laugardag. Á vef SVN kemur fram að starfsmenn fiskiðjuversins taki þessari sendingu frá vinum vorum Færeyingum fegins hendi meðan beðið er eftir að loðnuvertíð fari í gang.
Bæjarráð Fljótsdalshérað hefur afráðið að sveitarfélagið fari í allt að þriggja milljarða króna skuldabréfaútboð í samræmi við lánsfjárþörf Fljótsdalshéraðs næstu þrjú árin.
Á fundi bæjarráðs 14. janúar síðastliðinn kynntu bæjarstjóri og fjármálastjóri viðræður sem fram hafa farið við fjármálastofnanir í tengslum við lánsfjármögnun fyrir sveitarfélagið. Samþykkti bæjarráð í framhaldi að undirbúningur skyldi hafinn að skuldabréfaútboði.
Fólk var byrjað að safnast saman á kaupfélagsplaninu á Egilsstöðum laust fyrir klukkan hálf átta í kvöld og hvatti Egilsstaðabúa og alla sem vilja til að mæta sem fyrst með potta, pönnur og annað slagverk og mótmæla ríkisstjórninni.
Næsti skipulagði mótmælafundur mun að sögn forsvarsmanna verða á laugardaginn kemur í Tjarnargarðinum og hefst klukkan 15.