Austurglugginn hefur flutt skrifstofu sína úr gamla verkalýðshúsinu við Brekkugötu á Reyðarfirði yfir á Búðareyri 7, 2. hæð. Er lesendum blaðsins og öðrum velunnurum þess velkomið að líta þar við til skrafs og ráðagerða.
Héraðsdómur Austurlands kvað í gær upp þrjá dóma vegna ofbeldisbrota. Átján ára karlmaður var dæmdur í eins mánaðar langt skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás, en hann sló annan mann hnefahöggi í andlitið á veitingastaðnum Café Kósý á Reyðarfirði í marsmánuði, með þeim afleiðingum að brotaþoli nefbrotnaði og hlaut glóðarauga á vinstra auga. Auk skilorðsbundins fangelsisdóms var ákærða gert að greiða sakarkostnað, tæpar 19.000 krónur. Héraðsdómur dæmdi einnig karlmann um tvítugt í eins og hálfs mánaðar langt skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás og brot gegn valdstjórninni sem framin voru í nóvember. Maðurinn veittist að manni á skemmtistaðnum Dátanum á Akureyri og veitti hnefahögg, með þeim afleiðingum að brotaþoli hlaut áverka í andliti. Þá sparkaði maðurinn niður lögreglumann sem hafði afskipti af honum vegna fyrrgreinds atviks fyrir utan skemmtistaðinn. Þá dæmdi Héraðsdómur Austurlands sautján ára stúlku fyrir líkamsárás, en ákvörðun refsingar var frestað vegna ungs aldur stúlkunnar og hreins sakavottorðs. Hin ákærða réðst á konu á skemmtistaðnum Egilsbúð í Neskaupstað í febrúar, en þá var hin ákærða sextán ára gömul. Hún sló konuna hnefahögg í andlitið og nokkur högg í höfuðið, með þeim afleiðingum að sú hlaut glóðarauga á báðum augum og bólgur í andliti og höfði. Auk dómsins var ákærðu gert að greiða sakarkostnað, tæplega 106.000 krónur.
Með hækkandi sól breiða blómin út faðma sína og austfirska
tónleikasumarið byrjar af alvöru. Austurglugginn brá sér á tónleika
Megasar og Senuþjófanna á Norðfirði í gærkvöldi og krasstúr sem
stoppaði á Seyðisfirði á laugardag.
Atvinnuleysi hefur minnkað talvert á Austurlandi og eru nú rúmlega 270 atvinnulausir í fjórðungnum miðað við fimmhundruð þegar ástandið var hvað verst fyrir rúmum tveimur mánuðum. Þá var áberandi hversu margir karlar voru án atvinnu en nú er kynjahlutfall atvinnulausra svo til jafnt. Flestir eru nú atvinnulausir á Fljótsdalshéraði og næstflestir í Fjarðabyggð.
Austurglugginn er að þessu sinni helgaður sjómönnum, enda sjómannadagurinn á morgun og mikið um að vera í sjávarplássum um helgina. Meðal efnis eru umfjallanir um fyrirhugaða fyrningarleið stjórnvalda og stöðu sjávarútvegsins um þessar mundir, ásamt viðtölum við sjómenn og fleiri sem lifa og hrærast í sjósókninni. Austurglugginn - ferskur og spriklandi - fæst á betri blaðsölustöðum.
Einherji sló Huginn út úr bikarkeppni karla í gær með 3-0 sigri á
Vopnafirði. HK/Víkingur fór árangursríka ferð austur í 1. deild kvenna
í knattspyrnu.
Nýr Austurgluggi kom út í dag. Auk frétta og annars efnis fylgir blaðinu sérblað um austfirska knattspyrnusumarið 2009. Þá er í Austurglugganum umfjöllun um hverju austfirsk sveitarfélög gætu staðið frammi fyrir finnist olía á Drekasvæðinu.
Austurglugginn fæst á betri blaðsölustöðum og fótboltablaðið liggur frammi á helstu eldsneytissölustöðum fjórðungsins og er ókeypis.
Markús Eyþórsson og Benedikt Hermannsson á Egilsstöðum hafa keypt rekstur Toyota á Austurlandi og verða, undir nafninu Bílaverkstæði Austurlands, með viðgerðarverkstæði og sölu á notuðum bílum. Fram kom í Austurglugganum í síðustu viku að aðeins ein bílasala væri nú á svæðinu frá Selfossi til Akureyrar, en sama dag og blaðið var prentað var gengið frá samningi um kaupin á Toyota á Austurlandi og því eru bílasölurnar tvær.