Ólafur Valsson, yfirmaður matvælaeftirlits Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA)
segir bann Evrópusambandsins gegn notkun fjölfosfata í saltfiski snúast
um vernd neytenda. Ekki sé fyllilega ljóst hvaða áhrif efnin hafi á
fólk.
Landsvirkjun vildi að greiðsla fyrir vatnsréttindi Kárahnjúkavirkjunar
yrði lækkuð í 770 milljónir króna. Fyrirtækið byggði kröfuna einkum á
fordæmi frá Blönduvirkjun. Héraðsdómur Austurlands staðfesti í gær
úrskurð matsnefndar frá árinu 2007 um að Landsvirkjun bæri að greiða
landeigendum 1,6 milljarð króna fyrir vatnsréttindin.
Gísli M. Auðbergsson, eigandi austfirsku lögmannsstofnunnar Réttvísi,
segir ljóst að lög um kosningar til stjórnlagaþings hafi verið illa
samin. Hefði Hæstiréttur ekki ógilt kosningarnar hefði það rýrt tiltrú
Íslendinga á kosningakerfinu. Í kæru Réttvísi var meðal annars vísað til
ákvæða í stjórnarskrá um leynd kosninga.
Eftir áföll seinustu mánaða er íslenska þjóðin farin að sjá í gegnum
spuna sem á borð fyrir hana er borin. Þetta er meðal þess sem fram kemur
í lokaorðum völvu Agl.is.
Á morgun fara fram úrslit í spurningakeppni fermingarbarna á
Austurlandi. Keppt verður í Reyðarfjarðarkirkju en þetta er í fyrsta
sinn sem keppnin er haldin.
Matsnefnd á vatnsréttindum við Kárahnjúkavirkjun taldi árið 2007 að ekki
væru aðrir vænlegir kaupendur að orku frá virkjuninni heldur en álver
Alcoa í Reyðarfirði. Það rýrir því kröfur landeigenda um háar bætur.
Lögreglan á Eskifirði handtók í gær nokkra aðila í tengslum við
rannsóknir innbrota og þjófnaða, sem framin hafa verið í umdæminu og
víðar undanfarnar vikur. Málin teljast nú upplýst og hinum handteknur
hefur verið sleppt.
Bæjarstjórnarbekkurinn sá fyrsti í röðinni var settur upp í Samkaupum á Egilsstöðum. Á hann settust forseti bæjarstjórnar, formaður bæjarráðs og bæjarstjórinn á Fljótsdalshéraði.
Langflestir einkaaðilar sem eiga vatnsréttindi á vatnasvæði
Kárahnjúkavirkjunar stóðu saman að kröfugerð um hærri bætur fyrir
réttindin. Margar jarðir á svæðinu er í eigu ríkisins sem sætti sig við
niðurstöðu matsnefndar. Þetta virðist hafa grafið undan málflutningi
landeigenda.
Héraðsdómur Austurlands staðfesti í morgun mat meirihluta matsnefndar á
verðmæti vatnsréttinda við Jökulsá á Dal og Kelduá í Fljótsdal sem dæmdi
landeigendum 1,6 milljarða króna bætur. Dómurinn staðfesti í
meginþáttum úrskurð matsnefndar frá sumrinu 2007.
Þorbjörn Broddason, prófessor í fjölmiðlafræði við Háskóla Íslands,
segir stjórnmálamönnum frjálst eins og öðrum að hafa skoðanir á
fjölmiðlun og láta þær í ljósi. Grundvallarboðorð góðs fréttamanns að
tortryggja það sem honum er sagt.Algengara sé en marga gruni hversu lævíslega stjórnmálamenn reyni að hafa áhrif á fréttaflutning.
Óðinn Jónsson, fréttastjóri Ríkisútvarpsins, hafnar því að efni á fréttastofu sé unnið eftir listum frá forsvarsmönnum sveitarfélaga. Hann vonast til að aðrir Austfirðingar hafi meiri skilning á hlutverki fjölmiðla en þeir sem sendi fjölmiðlum slíka lista.