Um áttaíu fyrirtæki og einstaklingar kynntu vörur sínar og þjónustu á
atvinnulífssýningunni Okkar samfélag sem haldin var í Egilsstaðaskóla
fyrir skemmstu. Sýningarhaldarar áætla að um þrjú þúsund gestir hafi
sótt sýninguna sem stóð í tvo daga.
Nauðsynlegt er að koma hreindýrum, sem veidd eru, sem fyrst í kælt rými til að tryggja gæði kjötsins. Mynd, sem birtist af felldu dýri á Egilsstöðum í byrjun vikunnar, hefur vakið upp spurningar um meðferð á kjötinu.
Síldarvinnslan hf í Neskaupstað (SVN) hefur undirritað kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í útgerðarfélagi Bergur-Huginn ehf (BH) í Vestmannaeyjum. Seljandi er hlutafélag í eigu Magnúsar Kristinssonar útgerðarmanns og fjölskyldu. Kaupverð er trúnaðarmál milli kaupanda og seljenda að því er kemur fram í fréttatilkynningu Síldarvinnslunnar. Með kaupunum styrkist staða Síldarvinnslunnar í bolfiski. Útlit er fyrir að skipunum verði fækkað um eitt.
Vegagerðin varar við snjómuggu á Fjarðarheiði og Hellisheiði eystri og mögulega einnig efst á Oddsskarði í kvöld og í nótt en mikið kuldakast gengur yfir allt landið sem kemur hvað harðast niður á Austfirðingum.
Umhverfisstofnun ber að auglýsa það hreindýrakjöt, sem henni berst, til kaups. Nokkuð er um að stofnunin fái kjöt af dýrum sem orðið hafa fyrir slysaskotum, flækst í girðingum eða dáið af öðrum ástæðum.
Sveitarfélagið Fjarðabyggð hefur hvatt Íbúðalánasjóð til að setja fleiri íbúðir á leigu. Sjóðurinn hefur að einhverju leyti brugðist við þeim umleitunum en vill frekar selja húsnæði en leigja.
Ekki eru allir á eitt sáttir um þær hefðir sem víða tíðkast í framhaldsskólum landsins við busavígslur. Deilt er um hvort þær séu skemmtun eða andlegt ofbeldi og niðurlæging. Dæmi eru um að nemendur hafi heimtað harðari busanir þegar búið hafi verið að róa þær niður.
Ólöglegt er að fara til hreindýraveiða á fjórhjóli eða sækja á því fallna bráð. Mynd af hauslausu hreindýri á fjórhjóli sem lagt var á fjölförnu svæði á Egilsstöðum um helgina hefur fengið mikla athygli í fjölmiðlum.
Aðgengi hreyfihamlaðra að Bókasafni Héraðsbúa, sem staðsett er á þriðju hæð Safnahússins á Egilsstöðum, er verulega skert. Upp á hæðina liggur aðeins snarbrattur stigi, engar lyftur fyrir hjólastóla eru í húsinu. Dæmi eru um að fólk heimsæki ekki bókasafnið vegna þessa.
Austurbrú stendur fyrir ráðstefnunni „Make it Happen” – sem er haldin í tilefni af 10 ára afmæli Menningarráðs Austurlands og til að fagna 10 ára menningarsamstarfi við Vesterålen í Noregi í lok september. Ráðstefnan er einnig lokaviðburður Evrópu-verkefnisins Creative Communities sem er unnið með samstarfsaðilum í Svíþjóð og Danmörku.
Ábúendur á tveimur bæjum á Jökuldal fengu í síðustu viku landgræðsluverðlaunin 2012. Bæði hafa þeir grætt upp eigin jarðir en einnig leitt landgræðslustarf í dalnum.
Þriggja manna sendinefnd frá Rúnavík, vinabæ Fljótsdalshéraðs, heimsótti atvinnulífssýninguna Okkar samfélag sem haldin var nýverið á Egilsstöðum. Austfirskum fyrirtækjum var á móti boðið á stærstu atvinnusýningu Færeyja í haust.