Forstjóri Landsbankans segir minni viðskipti á Stöðvarfirði hafa orðið
til þess að ákveðið hafi verið að loka útibúi bankans á staðnum. Miklar
breytingar hafi orðið á bankaþjónustu undanfarin ár.
Forsvarsmenn Sparisjóðs Norðfjarðars skoða hvaða þjónustu þeir geti
veitt Stöðfirðingum. Mikil reiði hefur verið á staðnum síðan
Landsbankinn lokaði afgreiðslu sinni þar í byrjun mánaðarins. Fulltrúar
sparisjóðsins verða á Stöðvarfirði á morgun.
Nú gefst almenningi í fyrsta sinn kostur á að gera athugasemdir við drög
að stefnumótun í skógræktarmálum Íslendinga. Stefna í skógræktarmálum
Íslendinga finnst í ýmsum lögum, samþykktum og áætlunum en hvergi í
heild á einum stað.
Páll Baldursson, sveitarstjóri Breiðdalshrepps, spyr hvað menn telji sig
fá með að færa Hringveginn af Breiðdalsheiði yfir á firði annað en það
að hafa örfáa brauðmola af nágrönnum sínum.
Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í
Norðausturkjördæmi, segir það hafa komið sér á óvart þegar hann settist á
þing hversu lág laun þingmenn legðu á sig fyrir mikla vinnu. Þau séu
jafnvel hættulega lág.
Vinir Vatnajökuls auglýsa eftir umsóknum um styrki. veittir eru styrkir
til rannsókna, kynninga- og fræðslustarfs sem stuðlar að því að sem
flestir geti notið náttúru og sögu Vatnajökulsþjóðgarðs.
Alcoa Fjarðaál auglýsir eftir umsóknum um samfélagsstyrki fyrir síðari hluta ársins 2010. Fyrirtækið úthlutar styrkjum tvisvar á ári, að vori og hausti. Nú í vor veitti Fjarðaál rúmlega 4,6 milljónir króna í styrki til 22 aðila. Ekki eru veittir styrkir til stjórnmálasamtaka, trúfélaga eða til almenns reksturs félaga.
Ljós blikkuðu á Austurlandi fyrir hádegið og taka þurfti rafmagn af
kerskála Alcoa Fjarðaáls vegna rafmagnstruflananna. Ástæðan er bilun hjá
Norðuráli á Grundartanga.
Séra Hólmgrímur Bragason, héraðsprestur í Austfjarðaprestakalli, segist
hafa setið sam lamaður undir fréttaflutningi undanfarinna vikna af
kynferðismálum fyrrverandi biskups. Hann þakkar konunum fyrir það
hugrekki sem þær hafa sýnt með að segja frá reynslu sinni.
Stærstu sveitarfélög Austurlands, Fljótsdalshérað og Fjarðabyggð, eru á meðal rúmlega tuttugu sveitarfélaga sem fengið hafa aðvörun frá nefndinni vegna mikilla skulda. Hún vill að sveitarfélögin skýri hvernig þau ætli að snúa stöðunni við.