Bjarni Ben með opna fundi
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, ræðir við gesti og svarar fyrirspurnum um rannsóknarskýrslu Alþingis á tveimur opnum fundum á Austfjörðum á morgun. Fyrri fundurinn á Fjarðahóteli á Reyðafirði klukkan 12:00 og sá seinni á Hótel Héraði á Egilsstöðum klukkan 20:00.Ekkert millilandaflug um Egilsstaðaflugvöll í dag
Ekkert flug millilandaflugvéla hefur verið um Egilstaðaflugvöll eftir hádegi í dag. Innanlandsflugið liggur einnig niðri. Það eru öskuskotin ský í 20 þúsund feta hæð sem valda þessari lokun flugvallarinns.Kvenfélagið Hlíf gaf hjartalínurita
Kvenfélagið Hlíf í Breiðdal færði Heilsugæslustöðinni á Breiðdalsvík hjartalínurita að gjöf á sumardaginn fyrsta.Helga ætlar ekki að halda áfram sem bæjarstýra
Helga Jónsdóttir, bæjarstýra í Fjarðabyggð, sækist ekki eftir að verða ráðin aftur í starfið þegar ráðningartímabil hennar rennur út eftir sveitarstjórnarkosningar í vor. Helga tilkynnti þetta á bæjarráðsfundi í morgun. Hún segir dræmar undirtektir ríkisins við Norðfjarðargöng mestu vonbrigðin á starfstímabilinu.
Iceland Express skildi eftir hluta farangurs í Varsjá
Nokkur rekistefna varð á flugvellinum á Egilsstöðum síðasta laugardag þegar farþegar sem voru að koma frá Varsjá með Iceland Express uppgötvuðu að hluti farangursins hafði verið skilin eftir þegar flugvélin fór í loftið þar úti.Millilandaumferð eykst um Egilsstaðaflugvöll
Fjórar millilandaflugvélar hafa haft viðkomu á Egilsstaðaflugvelli það sem af er degi. Þrjár þotur frá Iceland Express og ein frá Flugleiðum.
Þórunn leiðir framsókn á Vopnafirði
Þórunn Egilsdóttir skipar efsta sætið á lista Framsóknarflokksins í Vopnafjarðarhreppi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Framsóknarmenn á Vopnafirði hafa undanfarin ár verið í samstarfi með öðrum á Vopafirði, fyrst undir merkjum Vopnafjarðarlistans og síðan K-lista félagshyggjufólks og verið með meirihluta í sveitarstjórn.
Landa kolmunna á Vopnafirði
Faxi RE og Lundey NS eru á leiðinni til Vopnafjarðar af kolmunnamiðunum suður af Færeyjum með fullfermi af kældum afla eða alls um 2.700 tonn.Arnbjörg efst á lista Sjálfstæðismanna á Seyðisfirði
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins á Seyðisfirði hefur verið samþykktur. Fyrsta sæti listans skipar Arnbjörg Sveinsdóttir fyrrverandi alþingiskona. Bæjarstjóraefni Sjálfstæðismanna er Ólafur Hreinn Sigurðsson, núverandi bæjarstjóri. Tvær konur skipa efstu tvö sætin.
Sumarlöndun á Breiðdalsvík
Landað var úr tveimur bátum, Ragnari og Guðmundi Sig á Breiðdalsvík á sumardaginn fyrsta.