Útvarp Ormsteiti FM 103,2 á Fljótsdalshéraði fer í loftið klukkan 16:00
föstudaginn 13. ágúst. Þá verður hitað upp fyrir hverfagrillið með
léttri tónlist, spjalli auk getrauna þar sem hlustendur geta unnið sér
inn eitthvað girnilegt á grillið.
Heilbrigðisnefd Austurlands vill að stór hundur á Vopnafirði verði
aflífaður eða látinn ganga með múl þegar hann er úti. Hundurinn beit frá sér og íbúar eru sagðir hræddir við dýrið.
Síldarvinnslan bar tugmilljóna skaða af skemmdum sem urðu á gamla
frystihúsinu í Neskaupstað við tökur á lokaatriði kvikmyndarinnar Hafið
árið 2001, þrátt fyrir að dómur í málinu hafi fallið fyrirtækinu í hag.
Bæjarstjórn Seyðisfjarðar minnir á að samkvæmt úttekt Euro RAP á
íslenska vegakerfinu sé vegurinn yfir Fjarðaheiði einn hættulegasti
vegur landsins. Slysahætta er sögð mikil á veginum. Bæjarstjórnin vill
að göng undir heiðina verði sett á samgönguáætlun strax í haust.
Áætlað er að um þrjú þúsund gestir hafi sótt hátíðina Neistaflug sem haldin var í Neskaupstað um helgina. Að sögn lögreglu var umferð þó nokkur en engin stór mál komu upp. Hlaupari í Barðsneshlaupi meiddist þegar hann varð fyrir bíl. Hann lauk hlaupinu en við skoðun kom í ljós að brot úr bílljósinu hafi setið eftir í læri hans.
Nemendur í Vinnuskóla Fljótsdalshéraðs byrjuðu í gær að þrífa tjörnina í Tjarnargarðinum á Egilsstöðum. Verkið heldur áfram næstu daga. Nemendurnir taka gras upp úr ytri enda tjarnarinnar og fleira sem ekki á að vera í henni.
Einn Austfirðingur er á meðal 60 skattahæstu einstaklinga Íslands samkvæmt lista Ríkisskattstjóra sem birtur var í dag.Guiliano Taglini, sem skráður er til heimilis á Laugarási á Fljótsdalshéraði, er í 50. sæti listans og greiðir 34,4 milljónir króna í skatt.