Fellabakarí bakar eins og ekkert hafi í skorist
Starfsemi Fellabakaríis er komin í gang aftur eftir brunann sem þar varð fyrir rúmum hálfum mánuði. Framleiðslustoppið vegna brunans varð aðeins rúm vika.Nýr bátur til Vopnafjarðar
Nýr bátur Hildur GK 117 kom um síðustu helgi til heimahafnar á Vopnafirði í fyrsta sinn. Báturinn er búinn til línu og handfæraveiða.Engar kosningar kærðar
Úrslit austfirsku sveitarstjórnarkosninganna hafa verið staðfest. Engar kærur bárust yfirvöldum áður en kærufrestur rann út. Lítið var um útstrikanir á Vopnafirði.
,,Umhverfisslys" á Norðfirði
Segja má að málning á nýmáluðu þaki áhaldahúss Fjarðabyggðar á Norðfirði hafi flotið á haf út í dag. Verktaki hafði nýhafið að sprauta þakið þegar aftaka vatnsveður gerði sem þvoði alla blauta málningu af þakinu.Fljótsdalshérað auglýsir eftir bæjarstjóra
Sveitarfélagið Fljótsdalshérað auglýsir í Morgunblaðinu í dag, stöðu Bæjarstjóra Fljótsdalshéraðs lausa til umsóknar. Umsóknarfrestur um stöðuna er til 24. júní næstkomandi.Björgunarsveitin Bára á Djúpavogi fær nýjan björgunarbát
Nýr og vel út búinn björgunarbátur bættist við í tækjasafn Björgunarsveitarinnar Báru á Djúpavogi um síðustu mánaðarmót. Báturinn var vígður á sjómannadaginn og hlaut nafnið Dröfn.Gauti næsti sveitarstjóri á Djúpavogi
Gauti Jóhannesson verður að öllu óbreyttu næsti sveitarstjóri Djúpavogshrepps. Ekki hefur verið gengið á ráðningunni en það verður að líkindum gert á næstu dögum.
Sláttur byrjaður í Fljótsdal
Bændurnir á Brekku í Fljótsdal, Hallgrímur Þórhallsson og Anna Bryndís Tryggvadóttir hafa hafið slátt, bæði heima á Brekku og á Skriðuklaustri.Austurglugginn auglýsir eftir ritstjóra
Héraðsfréttablaðið Austurglugginn auglýsir eftir ritstjóra í Morgunblaðinu í dag. Steinunn Ásmundsdóttir núverandi ritstjóri mun samkvæmt því hætta á blaðinu 1. september næstkomandi.Björgunarbáturinn Hafdís í fyrsta útkallið
Nýr björgunarbátur Björgunarsveitarinnar Geisla á Fáskrúðsfirði Hafdís fór í sitt fyrsta útkall, þegar kviknaði í strandveiðibát 19 sjómílur út af Gvendarnesi, milli Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar, upp úr hádegi í dag.Þetta húsnæði hefur rústað lífi okkar
Þriggja barna móðir á Egilsstöðum segir sig og börn sín þrjú hafa orðið fyrir alvarlegu, varanlegu heilsutjóni af því að búa í húsnæði á vefum sveitarfélagsins Fljótsdalshéraðs sem svartur myglusveppur er að eyðileggja. Hún ásakar sveitarfélagið og starfsmenn þess fyrir að hafa dregið lappirnar í málinu.