Umboðsmaður barna flytur skrifstofu embættisins til Egilsstaða í næstu viku. Markmið flutninganna er að hitta þá sem starfa að málefnum barna í Fljótsdalshéraði og heimsækja skóla á svæðinu.
Gestir á íbúafundi á Reyðarfirði í gærkvöldi um nýtingu söluandvirði Rafveitu Reyðarfjarðar risu upp gegn dagskrá fundarins og neituðu að ræða aðra kosti en því verði varið til að byggja nýtt íþróttahús.
Beðið er með allan mokstur á fjallvegum á Austurlandi þar til stórhríðin sem þar hefur geisað í nótt og morgun gengur niður. Reynt verður að hreinsa vegi á láglendi eftir sem kostur er.
Vegurinn yfir Fjarðarheiði var lokaður nær samfleytt fá föstudagsmorgni til miðvikudagsmorguns. Þótt búið sé að ryðja veginn vel má enn sjá ummerki með mannhæðarháum ruðningum.
Nýr oddviti var óvænt kjörinn á fundi sveitarstjórnar Fljótsdalshrepps sem haldinn var í gær. Fráfarandi oddviti, Gunnþórunn Ingólfsdóttir, hafði gegnt embættinu óslitið frá árinu 2002.
Ákveðið hefur verið að fresta árshátíðum Alcoa Fjarðaáls sem halda átti í marsmánuði vegna útbreiðslu kórónaveirunnar Covid-19. Fyrri hátíðin átti að fara fram um næstu helgi.
Sóttvarnalæknir, í gegnum rekstraraðila hjúkrunarheimila um land allt, hefur gefið út leiðbeiningar til þeirra sem hyggja á heimsóknir til ættingja og vina sem dvelja á hjúkrunarheimilum vegna útbreiðslu kórónaveirunnar Covid-19.
Víðtækar rafmagnstruflanir hafa verið á Austurlandi frá því á sunnudag. Íbúar á Efra-Jökuldal hafa verið án rafmagns frá miðnætti og skólahald var blásið af á Brúarási í morgun. Viðgerðarflokkar Rarik eiga erfitt um vik uns veðrið gengur niður.
Snjómokstur er hafinn á helstu fjallvegum á Austurlandi en útlit er fyrir að hann muni taka drjúgan tíma. Snjórinn er víða þungur og erfiður viðureignar.