Viðgerð á Hoffelli, flutningaskipi Samskipa sem kom til Eskifjarðar á sunnudagskvöld með bilaða vél, tekur lengri tíma en áætlað var. Ljóst er að skipið lætur ekki úr höfn í þessari viku.
Síldarvinnslan og tengd fyrirtæki í Neskaupsatð hafa undanfarin sex ár veitt 150 milljónum króna til að efla heilbrigðisþjónustu á Austurlandi. Bæjarfulltrúar í Fjarðabyggð segja það umhugsunarvert umhverfi sem velti kostnaði af opinberum stofnunum yfir á nærsamfélagið.
Ekki er talið að vinnsla á 520 þúsund rúmmetrum á efni úr sjó við Eyri í Reyðarfirði hafi teljandi áhrif á umhverfið í nágrenninu. Þar er eitt stærsta setsvæðið á grunnsævi í firðinum.
Þrjú varnarhólf fyrir sauðfjárveikivarnir á Austurlandi losna undan höftum riðuskilgreiningar um áramótin. Þar með verður aflétt höftum á flutningi á fé innan hólfanna.
Bæjarstjóri Seyðisfjarðarkaupstaðar segir ástæðu til bjartsýni í sveitarfélaginu á næstu árum þar sem tiltekt í fjármálum sveitarfélagsins sé að skila árangri. Eins sé tekið eftir bænum á heimsvísu og það sé að þakka mikilli vinnu.
Austurfrétt hefur staðið fyrir kosningu um Austfirðing ársins frá því að vefurinn hóf göngu sína árið 2012. Nú gefst lesendum tækifæri til að tilnefna þá sem þeir telja eiga heima í kjörinu.
Skúli Óskarsson, kraftlyftingamaður frá Fáskrúðsfirði, var í gærkvöldi tekinn inn í heiðurshöll Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Skúli er annar Austfirðingurinn sem útnefndur er í heiðurshöllina.
Hoffell, flutningaskip Samskipa sem varð vélarvana skammt utan Reyðarfjarðar fyrr í kvöld, kom til hafnar á Eskifirði skömmu fyrir klukkan hálf tólf í kvöld. Þangað sigldi skipið fyrir eigin vélarafli og gekk siglingin að óskum.
Þingmaður Miðflokksins segir furðulegt hvernig hálfum milljarði hafi verið bætt við til framkvæmda á veginum í botni Skriðdals milli umræðna um fjárlög ársins 2018 þegar brýnni verkefni á Austurlandi bíði afgreiðslu.
Sveitarfélagið Fjarðabyggð hefur verið sýknað af öllum kröfum eigenda hluta hluta húseignar á Fáskrúðsfirði um að greiða þeim lögmannskostnað sem þeir lögðu út í við að gæta hagsmuna sinna. Sveitarfélagið gaf út leyfi til að breyta þeim hluta hússins sem þeir áttu ekki og afturkallaði það svo. Dómurinn bendir á að lagaákvæði um útgáfu byggingaleyfa séu misvísandi.
Nýtt vallarhús verður stærsta framkvæmd Vopnafjarðarhrepps á árinu 2018. Gert er ráð fyrir ríflega 130 milljóna hagnaði af rekstri sveitarfélagsins á næsta ári.