„Eins og móðurskipið hafi kallað mig heim“
„Ég hafði enga von um það að vinna til þessara verðlauna og það var bara hálfgert sjokk,“ segir reyðfirski rithöfundurinn Inga Mekkin Beck, sem hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin árið 2016 á dögunum fyrir bókina Skóladraugurinn sem er jafnframt hennar fyrsta bók.„Norðfirðingar bjartsýnir á lífið eftir göng“
Hvernig nýtum við sóknarfærin er yfirskrift málþings um samfélagsleg áhrif Norðfjarðarganga sem haldið verður í Egilsbúð á laugardaginn milli klukkan 10:00 og 12:00.„Vilji til að stofna hagsmunafélag ungra Austfirðinga“
„Sú mynd sem ungt fólk á Austurlandi hefur af svæðinu og möguleikum þess er margt áhugaverð og ég held að það sé sterkt fyrir framtíð fjórðungsins hversu vel það er tilbúið að vinna saman þvert yfir sveitarfélög og hefur mikla óbeit á einhverjum gömlum og úldnum hrepparíg,” segir Dagur Skírnir Óðinsson, einn af skipuleggjendum undirbúningsfundar sem haldinn var á Borgarfirði um helgina.Verkfall sjómanna hefði vond áhrif á Eskju
Verkfall sjómanna gæti tafið uppbyggingu nýs frystihúss Eskju á Eskifirði. Samninganefndir funda fram eftir degi í von um sættir áður en verkfall hefst klukkan ellefu í kvöld.
Franska uppbyggingin hefur gert okkur enn stoltari af Fáskrúðsfirði
Bæjarstjóri Fjarðabyggðar afhenti nýverið forsvarsmönnum Minjaverndar viðurkenningar fyrir gott samstarf við íbúa, fyrirtæki og stofnanir í sveitarfélaginu við uppbyggingu frönsku húsanna á Fáskrúðsfirði. Uppbyggingin skipti máli fyrir bæði sjálfsálit íbúa og atvinnu í bænum.
Stolnum bíl skilað aftur á sama stað
Lögreglan á Austurlandi hefur ekki enn upplýsingar um ferðir bíls sem hvarf af bílastæðinu við flugvöllinn á Egilsstöðum á sunnudag. Ökumenn eru minntir á að fara með gát nú þegar hálka er tekin að myndast á vegum.
Áfram bjartsýn á millilandaflug um Egilsstaði
María Hjálmarsdóttir, verkefnastjóri hjá Austurbrú, er bjartsýn á að millilandaflug komist aftur á um flugvöllinn á Egilsstöðum á næstu árum þótt Discover the World hafi ákveðið að halda ekki áfram áætlunarflugi sínu. Dýrmæt reynsla hafi orðið til í sumar.
Orkuskipti á Austurlandi: Tæknin orðin ódýrari fyrr en fólk þorði að vona
Hjá Austurbrú er að komast á laggirnar verkefni um orkuskipti á Austurlandi þar sem horft er á uppbyggingu innviða fyrir rafmagnsbíla, nýja orkugjafa í sjávarútvegi og betri nýtingu á orku til húshitunar. Verkefnisstjóri segir tæknina vera fyrr komna á viðráðanlegt verð en reiknað var með.Kindurnar tregar heim á góðu hausti
Austfirska sauðfjárbændur vantar enn töluver í safn sitt þrátt fyrir göngur í haust. Kindurnar virðast tregar heim þar sem haustið hefur verið sérstaklega gott.
Bæjarstjóra Seyðisfjarðar afhent áskorun kennara um betri kjör
Vilhjálmur Jónsson tók í gær við undirskriftalista kennara við Seyðisfjarðarskóla og áskorun um betri kjör. Kennarar hafa lýst yfir miklum áhyggjum af nýliðun í stéttinni.
Lundúnafluginu hætt: Kannski vorum við aðeins of snemma á ferðinni
Breska ferðaskrifstofan Discover the World ætlar ekki að halda áfram beinu flugi milli Lundúna og Egilsstaða sem komið var á fyrir síðasta sumar. Samkeppni við flugfélög í gegnum Keflavík er erfið.