Listaverkin um hvalina hreyfa við fólkinu sem býr við hafið
Sjávarblámi, eftir Bryndísi Snæbjörnsdóttur og Mark Wilson, sumarsýningu Skaftfells á Seyðisfirði lýkur á föstudag. Á sýningunni beina þau sjónum sínum að nytjum af hvölum, bæði hvalrekum fyrri tíma og hvalveiðum. Hvalveiðistöðin á Vestdalseyri varð innblástur að sýningunni.Markmið að búa vel að tónlistarfólki í nýrri félagsaðstöðu
BRJÁN (Blús-, rokk- og jazzklúbburinn á Nesi) tók í byrjun sumars í notkun nýja félagsaðstöðu í húsinu sem áður hýsti verslunina Tónspil í miðbæ Neskaupstaðar. Þar er nú vel búin æfinga- og upptökuaðstaða á efri hæðinni en tónleikasalur á þeirri neðri.Helgin: Tónleikaröð með gítarleikara í forgrunni hefst í Tónspili
Tónleikaröðin Strengir, þar sem gítarleikarar eru í aðalhlutverki, hefst í Tónspili í Neskaupstað um helgina. Ný ljósmyndasýning opnar í Sláturhúsinu á Egilsstöðum og sagnasmiðjan með vefnað í forgrunni verður í Hallormsstaðarskóla.Samdi nýja lagið með tveimur Eurovision-förum
María Bóel Guðmundsdóttir úr Neskaupstað sendi nýverið frá sér nýtt lag „7 ár síðan“ sem er komið inn á spilunarlista útvarpsstöðvanna. Lagið samdi hún ásamt tveimur höfundum sem sigraði hafa Söngvakeppni sjónvarpsins.Geðlestin á ferð um Austurland
Geðlesin, fræðsluerindi og skemmtun á vegum Geðhjálpar, ferðast um landið þessa dagana í tilefni af Gulum september, vitundarátaki um geðheilsu. Opinn viðburður verður á hennar vegum á Vopnafirði annað kvöld.Hæglætisdagar framundan á Djúpavogi
Ellefta Cittaslow-ár Djúpavogs hefst formlega á morgun og stendur í þrjá daga fram á síðdegi á sunnudag. Sem fyrr er áherslan þessa daga að taka lífinu með ró og njóta augnabliksins.