Mælt með Neskaupstað í Lonely Planet
Neskaupstaður er einn þeirra þriggja staða á Íslandi sem fá meðmæli höfunda í grein í ferðaritinu Lonely Planet.Tunglbogi gladdi Austfirðinga
Tunglbogi, regnbogi sem myndast í tunglskini, sást víða á Austurlandi síðasta föstudagskvöld.Nanna hlakkar til að spila í Egilsbúð í fyrsta sinn
Nanna Bryndís Hilmarsdóttir, oft þekkt sem Nanna í hljómsveitinni Of Monsters and Men, heldur tónleika í Neskaupstað á laugardagskvöld. Nanna er síðan á leiðinni í Evrópuferð til að fylgja eftir sinni fyrstu sólóplötu. Hún segist spennt fyrir að koma fram í Egilsbúð þar sem hún hefur ekki spilað áður.Hollvættur á heiði frumsýnt á morgun
Nýtt íslenskt leikverk, Hollvættur á heiði, verður frumsýnt í Sláturhúsinu á Egilsstöðum á morgun. Verkið er samið inn í austfirskt umhverfi. Það er framleitt af Sláturhúsinu og er um atvinnusýningu sem er óvenjulegt fyrir austfirskar leiksýningar. Sláturhússtjórinn segir mikilvægt að tengja saman áhugafólk og atvinnufólk í leikhúsinu.Rithöfundur ferðast hringinn til að lesa upp úr nýrri bók
Algengt er að tónlistarmenn leggi upp í tónleikaferðir hringinn í kringum landið. Þann sið hefur Eiríkur Örn Norðdahl tekið upp til að kynna nýjustu bók sína, Náttúrulögmálin. Hann fer stað úr stað á Austurlandi frá og með morgundeginum.Hinsegin hópur Vegahússins samveruvettvangur fyrir ungmenni sem passa ekki í normið
Hinsegin hópur Vegahússins á Egilsstöðum var stofnaður fyrir um ári. Verkefnastjóri segir fjöldann sem sótt hefur í hópinn hafa sýnt þörfina á honum.Konan sem kom með menninguna í sveitina
Oddný á Gerði verður í öndvegi haustþings Þórbergsseturs að Hala í Suðursveit sem haldið verður á laugardag. Þórbergur Þórðarson hampaði henni sem konunni sem hefði komið með menninguna í Suðursveit. Út af henni er kominn stór frændgarður sem dreifist víða um Austfirði.Töfratré og draugadiskó! Dagar myrkurs að hefjast
Þær ekki margar menningarhátíðirnar sem ná til alls Austurlands og reyndar aðeins ein slík haldin árlega. Sú, Dagar myrkurs, hefst formlega á morgun þriðjudag og stendur í tæpa viku.