Íbúarnir eru hræddir við dýrið
Heilbrigðisnefd Austurlands vill að stór hundur á Vopnafirði verði aflífaður eða látinn ganga með múl þegar hann er úti. Hundurinn beit frá sér og íbúar eru sagðir hræddir við dýrið.
Heilbrigðisnefd Austurlands vill að stór hundur á Vopnafirði verði aflífaður eða látinn ganga með múl þegar hann er úti. Hundurinn beit frá sér og íbúar eru sagðir hræddir við dýrið.
Auðunn Baldursson hefur safnað steinum af ástríðu í tuttugu ár. Nýlega opnaði hann safn á Djúpavogi þar sem hann sýnir helstu gripina.
Ekki er vitað til þess að neinn hafi veikst af völdum vatnsmengunar á Eskifirði í byrjun mánaðarins né að tíðni heimsókna á heilsugæslu hafi aukist. Þær stofnanir sem komu að aðgerðum vegna mengunarslyssins í fiskimjölsverksmiðju Eskju í byrjun mánaðarins ætla að fara yfir viðbrögð sín á næstunni.
Páll Björgvin Guðmundsson, verðandi bæjarstjóri Fjarðabyggðar, var einn þeirra fimm umsækjenda um starfið sem drógu umsóknir sínar til baka.
Bæjarstjórn Seyðisfjarðar minnir á að samkvæmt úttekt Euro RAP á íslenska vegakerfinu sé vegurinn yfir Fjarðaheiði einn hættulegasti vegur landsins. Slysahætta er sögð mikil á veginum. Bæjarstjórnin vill að göng undir heiðina verði sett á samgönguáætlun strax í haust.
Fulltrúar Fjarðalistans í bæjarstjórn Fjarðabyggðar segja það að hafna öllum umsækjendunum um straf bæjarstjóra þá sorglegustu sem hægt hafi verið að hugsa sér. Páll Björgvin Guðmundsson, sem verður næsti bæjarstjóri, var ekki meðal þeirra átján sem sóttu um starfið miðað við lista sem gefinn var út í seinustu viku. Þeim umsækjendum var öllum hafnað. Fulltrúarnir vilja að ráðningarsamningur nýs bæjarstjóra verði gerður opinber.
Bæjarhátíðin Franskir dagar á Fáskrúðsfirði gekk vel að sögn þeirra sem Agl.is hefur rætt við. Margt fólk var á ferðinni og skemmtiatriðin fjölbreytt.
Einn Austfirðingur er á meðal 60 skattahæstu einstaklinga Íslands samkvæmt lista Ríkisskattstjóra sem birtur var í dag.Guiliano Taglini, sem skráður er til heimilis á Laugarási á Fljótsdalshéraði, er í 50. sæti listans og greiðir 34,4 milljónir króna í skatt.
Andrés Elísson, fyrrverandi bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð, vill að framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Austurlands taki ábyrgðina á að íbúar á Eskifirði hafi drukkuð mengað vatn. Hann segir að heilbrigðiseftirlitið hafi brugðist allt of seint við.
Endurbætur á veginum yfir Hólmaháls kosta fjörutíu milljónir króna. Vegagerðin telur að verktakinn eigi að að bera kostnaðinn en um það hefur ekki verið samið.
Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.