Úrkomumet var sett á Desjarmýri í Borgarfirði í morgun. Þar mældust sólarhringsúrkoman 151,4 mm klukkan níu í gærmorgun. Það er það mesta sem mælst hefur þar síðan úrkomustöð var sett upp árið 1998. Gamla metið var sett í ágúst 2001 þegar 132 mm mældust.
Hleinargarður, ysta býli í Eiðaþingá, gæti verið á leið á nauðungaruppboð. Nýi
Landsbankinn hefur gert kröfu um greiðslu fjörutíu milljóna króna
skuldar vegna jarðarinnar.
Fjölskylduhátíðin Álfaborgarsjens verður haldin um
verslunarmannahelgina, en hún er orðin að árvissum viðburði. Gunnar
Þórðarson, Hvanndalsbræður og Hagyrðingar eru meðal hápunkta
hátíðarinnar í ár.
Kertum verður fleytt í Tjarnargarðinum á Egilsstöðum á fimmtudagskvöld
í minningu fórnarlamba kjarnorkustrengjanna sem varpað var á japönsku
borgirnar Hírósíma og Nagasaki þann 6. og 9. ágúst árið 1945.
Neistaflug verður haldið í sautjánda sinn um verslunarmannahelgina. Í
þetta skiptið er horft aðeins til baka og lagt upp úr því að halda
fjölskylduvæna bæjarhátíð fremur en útihátíð.