Mennirnir á góðum batavegi
Mennirnir tveir sem misstu meðvitund um borð í Hoffellinu á Fáskrúðsfirði á dögunum eru báðir á góðum bartavegi. Sá sem lá lengur á gjörgæsludeildinni, er að koma niður á almenna deild á sjúkrahúsinu í dag.
Framboð sjálfstæðismanna liggja fyrir
Átta einstaklingar taka þátt í skoðanakönnun hjá Sjálfstæðisflokknum í Fjarðabyggð vegna uppstillingar á lista flokksins fyrir bæjarstjórnakosningarnar í vor.Stór hluti Valþjófsstaðar í Fljótsdal dæmd þjóðlenda
Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti í dag úrskurð óbyggðanefndar að stór hluti kirkjujarðarinnar Valþjófsstaðar í Fljótsdal skuli vera þjóðlenda.
Vel sóttur íbúafundur á Fáskrúðfirði
Íbúafélag Fáskrúðsfjarðar hélt nýverið aðalfund, þar voru á dagskrá ýmis mál sem brenna á heimamönnum, ásamt almennum aðalfundarstöfum.Brotist inn í bíla á Egilsstöðum
Brotist var inn í nokkra bíla á Egilstöðum síðasta sunnudag, þeir sem þar voru að verki voru handteknir og telst málið upplýst.Nauðungarsölur á Reyðarfirði
Nauðungaruppboð voru auglýst í Morgunblaðinu síðastliðinn laugardag á 64 íbúðum, í stóru blokkunum fjórum við Melgerði á Reyðarfirði.
Sorp af Héraði urðað í Breiðdal
Ljóst er að sorp frá Fljótsdalshéraði verður urðað í Breiðdal, í það minnsta tímabundið.
Framsókn framlengir
Framsóknarflokkurinn í Fjarðabyggð hefur framlengt frambosfrest til þátttöku í prófkjöri, vegna bæjarstjórnarkosninganna í vor.Umsóknum um hreindýraveiðileyfi fjölgar milli ára
Frestur til að sækja um veiðileyfi til hreindýraveiða til Umhverfisstöfnunar rann út í gær 15. febrúar. Um 3800 umsóknir bárust, sem er rúmlega 500 umsóknum fleiri en á síðasta ári. Dregið verður úr innsendum umsóknum 20. febrúar næstkomandi.Fjarðabyggð vann Síldarvinnslubikarinn
Fjarðabyggð sigraði í úrslitaleik Síldarvinnslumótsins í Fjarðabyggðarhöllinni í gærdag. Úrslitaleikurinn var milli Hattar og KFF. Höttur komst yfir í fyrri hálfleik, og staðan var 0-1 í hálfleik.