Fjölþjóðlegi listahópurinn Hello!Earth hefur síðustu daga staðið fyrir kosningum til Hamingjuráðuneytis Fljótsdalshéraðs. Niðurstöðurnar verða kynntar við Snæfellsstofu á sunnudag þar sem hópurinn býður gestum í 100 sálna súpu.
Breski hönnuðurinn Max Lamb segir Austurland búa yfir einstöku hráefni og þekkingu sem enn hafi ekki verið nýtt til fulls. Hann heimsótti fjórðunginn öðru sinni í haust og varði tímanum meðal annars í steinasöfnun.
Hákon Guðröðarson, framkvæmdastjóri Hildebrand Hótel, leitar nú dyrum og dyngjum að munum sem bera merki Kaupfélagsins Fram, sem starfaði á Norðfirði, eða samvinnuhreyfingunni. Munirnir eiga að skreyta hótelbar sem opnar innan skamms í húsnæðinu sem hýsti áður aðalstöðvar Fram.
Völva Austurfréttar spáir því að ríkisstjórn Íslands muni springa á miðju kjörtímabili. Þjóðin glímir við heilsuleysi, skerta heilbrigðisþjónustu og eiturlyfjavanda sem meðal annars stafar af breyttu skemmtanamynstri þjóðarinnar. Enn er eftir að gera upp við daður fyrri ríkisstjórnar við Evrópusambandið og auðmenn sem fyrir hrun gerðu þjóðinni til bölvunar á eftir að draga til ábyrgðar. Enn vaða þeir uppi sem hafa eigin hagsmuni að leiðarljósi. Bæta þarf úr vegakerfinu og aðgengi að ferðamannastöðum sem eru undir miklu álagi vegna aukinnar umferðar.
Fljótsdalshérað er komið í fjórðungsúrslit spurningakeppninnar Útsvars sem annað af stigahæstu tapliðunum í annarri umferð. Verkmenntaskóli Austurlands mætti ofjörlum sínum í annarri umferð Gettu betur.
Efnavopn hafa skelfilegar afleiðingar fyrir heimsbyggðina alla og mengun vegna iðnaðar hefur alvarleg áhrif á líf fólks um víða veröld. Þetta er meðal þes sem fram kemur í þriðja og síðasta hluta spár völvu Austurfréttar fyrir árið 2014.
Fjöldi gesta nýtti sér boð um að skoða varðskipið Þór í Seyðisfjarðarhöfn á laugardag. Skipverjar buðu gesti velkomna í skipið þeirra enda Þór í eigu ríkisins.