Þjóðfundur á Austurlandi

Þjóðfundur var settur á Austurlandi klukkan tíu í morgun. Fundurinn er sá fyrsti í röð átta þjóðfunda sem haldnir verða víðs vegar um land á næstunni. Rúmlega 70 manns alls staðar að af Austurlandi sækja fundinn, það er mæting sem svarar til að það mættu 1200 til 1500 manns á slíkan fund á höfuðborgarsvæðinu.

Lesa meira

MEingar í sjónvarpið og mótmæltu lokun RÚVAust

Menntaskólinn á Egilsstöðum tryggði sér í kvöld sæti í sjónvarpshluta spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur, þegar liðið skólans vann lið Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra 27-11. ME-liðið notaði tækifærið til að mótmæla lokun starfsstöðvar Ríkisútvarpsins á Egilsstöðum.

 

Lesa meira

Þorrablót átthagafélaga

Átthagafélög Vopnfirðinga, Borgfirðinga, Héraðsbúa og Breiðdælinga halda sameiginlegt þorrablót í Kópavogi 6. febrúar.

Lesa meira

Áfengissala dregst saman á Austurlandi

Samkvæmt tölum frá ÁTVR hefur áfengissala í Vínbúðum fyrirtækisins á Austurlandi, frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, dregist saman um 225 þúsund lítra eða um 28% milli áranna 2007 og 2009.

Lesa meira

Atvinnuleysi tvöfaldast á fáum mánuðum

Fjöldi atvinnulausra á Austurlandi hefur tvöfaldast á innan við hálfu ári. Síðan í október hefur fjölgað jafnt og þétt á skránni og nú eru 424 skráðir atvinnulausir á öllu Austurlandi, 217 karlar og 207 konur.

 

 

Lesa meira

Sviptingar í sveitastjórnum

Enginn fulltrúa Fjarðalistans í bæjarstjórn Fjarðabyggðar gefur kost á sér til áframhaldandi setu eftir kosningarnar í vor. Hreyfing er einnig á bæjarfulltrúum á Fljótsdalshéraði.

 

Lesa meira

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar