Gunnar Bragi: Vinna hafin við að nota skattkerfið til að styrkja dreifbýlið
Gunnar Bragi Sveinsson, landbúnaðar-, sjávarútvegs- og byggðamálaráðherra, hefur hrundið af stað skoðun á því hvernig beita megi skattkerfinu við að styrkja byggðir landsins. Slíkt fyrirkomulag þekkist meðal annars í Noregi og Svíþjóð.
Atvinnumálaráðstefna á Héraði: Auðlindir og atvinnusköpun
Róbert Guðfinnsson, Ragna Árnadóttir og Ragnheiður Elín Árnadóttir eru á meðal frummælenda á atvinnumálaráðstefnu sem haldin verður á vegum sveitarfélagsins Fljótsdalshéraðs á morgun.
Óttast að loka þurfi stígnum upp að Hengifossi: Þetta er afleit staða
Sveitarstjórn Fljótsdalshrepps óttast að grípa þurfi til lokana á stígnum upp að Hengifossi, einni vinsælustu náttúruperlu Austurlands, vegna versnandi ástands hans við ákveðnar aðstæður. Umsókn hreppsins til framkvæmdasjóðs ferðamannastaða um styrk í ár var hafnað.
Fjórar sóttu um stöðu skólastjóra Seyðisfjarðarskóla
Fjórar umsóknir bárust um stöðu skólastjóra Seyðisfjarðarskóla sem auglýst var í apríl. Nýjum skólastjóra er ætlað að sameina grunn-, leik- og tónlistarskóla í einn.Kransæðasjúkdómar algengasta orsök sjúkraflugs
Kransæðasjúkdómar eru algengustu veikindin þegar óskað er eftir sjúkraflugi frá Austurlandi. Læknir segir að læknar eystra þekki best aðstæður þegar taka þurfi ákvörðun um flutning sjúklings með slík veikindi.
Hluta Nesskóla lokað vegna myglusvepps
Ákveðið hefur verið að loka jarðhæð í vesturálmu Nesskóla í Neskaupstað tímabundið vegna myglusvepps. Ráðist verður í endurbætur á húsnæðinu í annað sinn á tveimur árum.
Fjarðabyggð: Gaman að fá peppið þegar maður fer út í búð
Fjarðabyggð og Fljótsdalshérað mætast í undanúrslitum spurningakeppninnar Útsvars í kvöld. Davíð Þór Jónsson segir það mikil virði að finna hvernig íbúar sveitarfélagsins standi að baki keppnisliðinu.Guðni Th. vinsælastur meðal Austfirðinga
Yfir 80% kjósenda á Austurlandi velja Guðna Th. Jóhannesson sem næsta forseta. Austfirðingar virðast einnig óánægðari en flestir aðrir með ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar með að bjóða sig ekki fram aftur.
2,5 milljónir austur til atvinnumála kvenna
Fjögur austfirsk verkefni fengu samanlagt 2,5 milljónir króna þegar félags- og húsnæðismálaráðherra úthlutaði verið styrkjum til atvinnumála kvenna.
Skrautleg umræða um Skógræktina: Þingmenn nánast grátbólgnir í faðmlögum af fögnuði
Umhverfisráðherra mælti í gær fyrir breytingu á ýmsum lögum sem snúa að skógrækt sem eru forsenda þess að Skógrækt ríkisins og landshlutaverkefni í skógrækt verði sameinuð í eina stofnun. Þingmenn fögnuðu frumvarpinu en umræðan var með skrautlegra móti. Farsími eins hringdi í ræðustól og annar rifjaði upp veisluhöld frá því Skógrækt ríkisins var flutt austur fyrir aldarfjórðung.
Fjarðabyggð fór ekki að lögum við leyfisveitingu fyrir niðurrifi húss
Minjastofnun Íslands skoðar nú mál Naustahvamms 54 í Neskaupstað en húsið var nýverið brennt í æfingaskyni fyrir Slökkvilið Fjarðabyggðar. Álits Minjastofnunar var ekki aflað áður en eldur var borinn að húsinu eins og lög gera ráð fyrir.