Guðmundur nýr útibússtjóri Arion banka
Guðmundur Ólafsson er nýr útibússtjóri Arion banka á Egilsstöðum. Hann tók við starfinu af Ágústu Björnsdóttur fyrir helgi.
Guðmundur Ólafsson er nýr útibússtjóri Arion banka á Egilsstöðum. Hann tók við starfinu af Ágústu Björnsdóttur fyrir helgi.
Arkitektastofan Stúdíó Strik hefur kært niðurstöðu dómnefndar í hönnunarsamkeppni Hjúkrunarheimilsins Hulduhlíðar á Eskifirði til kærunefndar útboðsmála. Fyrirtækið segir einn dómaranna hafa verið vanhæfan vegna fyrra samstarfs við fyrirtækið sem vann.
Útvarp Ormsteiti FM 103,2 á Fljótsdalshéraði fer í loftið klukkan 16:00 föstudaginn 13. ágúst. Þá verður hitað upp fyrir hverfagrillið með léttri tónlist, spjalli auk getrauna þar sem hlustendur geta unnið sér inn eitthvað girnilegt á grillið.
Um 190 Stöðfirðingar hafa undirritað áskorun til bankaráðs og bankastjóra Landsbankans þar sem hvatt er til að ákvörðun um lokun útibús bankans á staðnum verði endurskoðuð. Lokunin valdi eyðileggingu í samfélaginu.
HB Grandi hefur fengið verkfræðistofuna EFLU til að gera úttekt á fráveitumálum uppsjávarfrystihúss fyrirtækins á Vopnafirði. Grútarmengun hefur valdið íbúum Vopnafjarðar óþægindum í sumar.
Fjárhagslegri endurskipulagningu Sparisjóðs Norðfjarðar er lokið. Nýtt stofnfé, ríflega 250 milljónir króna, kom allt úr Fjarðabyggð.
Síldarvinnslan bar tugmilljóna skaða af skemmdum sem urðu á gamla frystihúsinu í Neskaupstað við tökur á lokaatriði kvikmyndarinnar Hafið árið 2001, þrátt fyrir að dómur í málinu hafi fallið fyrirtækinu í hag.
Umsækjendur um starf framkvæmdastjóra Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) gagnrýna harðlega ráðningarferlið. Björn Hafþór Guðmundsson, formaður, tekur við starfinu. Í auglýsingu kom fram að hann tæki við og veitti upplýsingar um starfið. Björn Hafþór segist engar umsóknir hafa opnað og hætt afskiptum af ráðningarferlinu um leið og hann ákvað að sækja um sjálfur.
Andrés Skúlason, oddviti Djúpavogshrepps, hjólaði ásamt tveimur öðrum frá Djúpavogi, yfir Öxi og til Egilsstaða á laugardag. Með ferðinni vildi hann vekja athygli á baráttu fyrir heilsársvegi yfir Öxi.
Fjórtán ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglustjórans á Seyðisfirði um helgina.
Nemendur í Vinnuskóla Fljótsdalshéraðs byrjuðu í gær að þrífa tjörnina í Tjarnargarðinum á Egilsstöðum. Verkið heldur áfram næstu daga. Nemendurnir taka gras upp úr ytri enda tjarnarinnar og fleira sem ekki á að vera í henni.
Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.